Matur

Ofnbökuð bleikja með Teryaki sósu og hrásalati

Stefán Árni Pálsson skrifar
Yndisleg ofnbökuð bleikja.
Yndisleg ofnbökuð bleikja.

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 í kvöld en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti. Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi.

Hér að neðan má lesa hvernig maður gerir réttinn.

„Matur í einum grænum – enn eitt dæmið um hvað er hægt að útbúa stórgóða máltíð á örfáum mínútum sem allir í fjölskyldunni elska,“ segir Eva Laufey.

Ofnbökuð bleikja með Teryaki sósu og hrásalati 

  • 4 flök bleikja
  • 1 msk ólífuolía + 1 tsk smjör
  • Salt og pipar
  • 6-8 msk Teriyaki sósa
  • 1 hvítlauksrif
  • 2 stilkar vorlaukur
  • 6 msk hreinn fetaostur
  • Ristuð sesamfræ



Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Leggið fiskinn á pappírsklædda ofnplötu.
  3. Saxið hvítlauk og vorlauk mjög smátt og blandið saman við teryaki sósuna. Penslið fiskinn með sósunni og það má fara vel af sósunni á fiskinn.
  4. Sáldrið ristuðum sesamfræjum yfir fiskinn og eldið í ofn við 180°C í 8 mínútur.
  5. Þegar fiskurinn er tilbúinn er frábært að mylja vel af fetaosti yfir og bera hann síðan fram með gómsætu hrásalati.

Hrásalat

  • ½ höfuð Hvítkál
  • ½ höfuð Rauðkál
  • 4 gulrætur
  • 4 radísur
  • Handfylli kóríander
  • Safi úr hálfri appelsínu



Aðferð:

  1. Skerið hráefnin afar smátt eða notið matvinnsluvél til þess að rífa hráefnin mjög smátt.
  2. Kreistið appelsínusafa og rífið niður kóríander yfir salatið í lokin.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.