Skoðun

Árangursríkt samstarf

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Norðurslóðasamstarfið er okkur afar mikilvægt. Ein helsta ástæðan er sú bráðnauðsynlega samvinna sem fram þarf að fara ef takast á að hægja á hlýnun jarðar og sýna þann viðnámsþrótt frammi fyrir alls kyns breytingum sem henni fylgja. Samstarfið kostar bæði fé og tíma en sú fjárfesting skilar sér margföld til baka.

Samstarfið fer fram á margvíslegum nótum og nær yfir flest öll svið mannlífsins. Vettvangurinn er Vestnorræna ráðið (Færeyjar, Grænland og Ísland), hið gamalgróna Norðurlandaráð, Norðurskautsráðið (á ríkisstjórnarstigi) og Þingmannaráðstefna norðurslóða. Auk þess má nefna stofnanir á borð við Háskóla norðurslóða (200 stofnanir) og vísindarannsóknasamstarf og ýmislegt annað.

Þegar þetta var skrifað í Inari í Samalandi Finnlands var nýlokið ráðstefnu okkar þingmanna norðurslóða sem stóð í þrjá gefandi daga. Íslenska sendinefndin samanstendur af þremur þingmönnum í eiginlegu þingmannanefndinni, fyrir utan mig, þeim Líneik Önnu Sævarsdóttur og Birni Leví Gunnarssyni, auk þess Guðjóni S. Brjánssyni frá Vestnorræna-ráðinu, Oddnýju G. Harðardóttur frá Norðurlandaráði, alþjóðaritaranum Örnu Bang og Sigurði Ólafssyni, framkvæmdastjóra Vestnorræna-ráðsins.

Hlutverk ráðstefnunnar er að vinna, samþykkja og leggja fram tillögur til ráðherranefndar Norðurskautsráðsins sem mörg dæmi eru um að teknar hafa verið upp til framkvæmda af ráðinu, til dæmis stofnun ráðsins sjálfs fyrir allmörgum árum og Háskóla norðurslóða. Þingmannaráðstefnan er 25 ára um þessar mundir.

Ólíkt því sem víða gerist í alþjóðasamvinnu er mjög góður andi á fundum og ráðstefnum þingmanna, jákvæð samvinna með löndum á borð við Rússland, Kanada og fulltrúum Færeyja og Grænlands í gegnum danska þjóðþingið. Þetta á líka við um Bandaríkin en því miður hafa stjórnvöld þar tónað þátttökuna niður og nú var enginn bandarískur fulltrúi á ráðstefnunni.

Um 40 tillögur voru einróma samþykktar í fjórum flokkum: Stafrænar norðurslóðir, veðurfarsbreytingar og áhrif þeirra, samfélagsábyrgð fyrirtækja og velferð þegnanna. Þær berast nú 8 ríkisstjórnum, Evrópuráðinu, frumbyggjasamtökum og Norðurskautsráðinu. Íslensku tillögunum var vel tekið (alls 8 talsins) og fengu allar gott brautargengi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×