Skoðun

Twitter breytti lífi hennar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Ekki veitir af að breyta heiminum til hins betra, en það gengur óneitanlega hægt. Ýmsu má þó koma til leiðar ef margir leggja saman. Þetta sýndi sig í máli hinnar átján ára sádi-arabísku Rahaf Mohammed al-Qunun sem lokaði sig inni á hótelherbergi í Bangkok eftir að hafa flúið fjölskyldu sína sem hún sagði vilja sig feiga vegna þess að hún hafnaði íslam. Rahaf hafðist við í herbergi sínu matarlaus en ekki alveg varnarlaus. Hún hafði verið svipt vegabréfi sínu en var með símann sinn sem hún nýtti sér til að komast í samband við umheiminn. Á sólarhring eignaðist hún 45.000 fylgjendur, þeim fór stöðugt fjölgandi og netið fylltist af hvatningarorðum og stuðningsyfirlýsingum til hennar. Oft og tíðum má ergja sig yfir ást nútímamannsins á snjalltækjunum sínum sem yfirleitt eru límd við hann, en svo koma stundir þegar þessi sömu tæki eru notuð á svo áhrifaríkan hátt að ekki er annað mögulegt en að margblessa tilveru þeirra.

Upptaka er til af embættismanni í sendiráði Sádi-Arabíu í Bangkok þar sem hann segir: „Það hefði verið betra ef síminn hennar hefði verið gerður upptækur í staðinn fyrir vegabréfið hennar. Twitter breytti öllu.“ Það var samfélagsmiðillinn sem kom unglingsstúlkunni í heimsfréttirnar og nú er hún í skjóli Sameinuðu þjóðanna.

Rahaf hefur vakið athygli á skelfilegu meini sem öllum er kunnugt um, sem er hlutskipti kvenna í Sádi-Arabíu sem hafa ekki sjálfstæðan tilverurétt. Litið er á þær sem eign karla og þeim ráðstafað eins og hverjum öðrum hlut. Það þarf ofurkjark til að rísa upp gegn slíkri kúgun enda getur slík uppreisn auðveldlega kostað konur lífið. Rahaf flúði fjölskyldu sína sem hafði að hennar sögn beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hún segist vilja mennta sig, vinna og vera frjáls, nokkuð sem allar manneskjur ættu að hafa tækifæri til.

Fullyrt er að Rahaf hafi fengið morðhótanir og að karlmenn í Sádi-Arabíu vilji að hún verði tekin af lífi og telji að þannig sé um leið auðvelt að koma þeim skilaboðum til sádi-arabískra kvenna að slík verði einnig örlög þeirra ákveði þær að fylgja fordæmi hennar.

Samfélag þar sem fyrirlitning og hatur á konum er ríkjandi getur ekki talist siðað. Samt er ríkjandi undirlægjuháttur meðal þjóða heims gagnvart Sádi-Arabíu, þar ráða viðskiptahagsmunir. Von um breytingar á hroðalegu hlutskipti kvenna þar í landi kann að felast í þrýstingi frá almenningi. Þar geta snjalltækin nýst á besta mögulega hátt. Twitter breytti til dæmis öllu í lífi Rahaf. Umheimurinn styður hana og einmitt það hlýtur að skapa ákveðið máttleysi meðal sádi-arabískra ráðamanna. Smám saman tekst vonandi að draga úr þeim vígtennurnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×