Skoðun

Misskiljum ekki neitt

Jón Helgi Björnsson skrifar
Fyrir örfáum dögum kom enn ein tilkynningin um að fundist hefði gat á opinni sjókví sem innihélt vel á annað hundrað þúsund frjóa norska laxa. Fleiri laxar voru í kvínni en sem nemur öllum hrygningarstofni villtra laxa. Landssamband veiðifélaga hefur ítrekað mótmælt eldi frjórra norskra laxa enda óumdeilt að slíkt eldi getur valdið alvarlegri erfðamengun í villtum stofnum.

Samkomulag svikið

Því miður var norskur eldisstofn fluttur til landsins árið 1988. Landssamband veiðifélaga gerði samkomulag við stjórnvöld og Landssamband fiskeldisstöðva um að flytja mætti norskan lax inn eingöngu til notkunar í landeldi. Tilgangurinn var að skjóta öruggari fótum undir rekstur fiskeldisstöðva á landi. Árið 1995 sviku stjórnvöld umrætt samkomulag og heimiluðu að frjóan norskan lax mætti ala í opnum sjókvíum gegn kröftugum mótmælum Landssambands veiðifélaga.

Enn er samkomulag lítils virði

Nýlega voru lögð fram ný drög að breytingum á lögum um fiskeldi. Sagt var í texta með lögunum að þau væru byggð á samkomulagi frá nefnd sjávarútvegsráðherra um stefnumótun í fiskeldi. Því miður er það rangt. Staðreyndin er að drögin sem nú eru kynnt eru gjörbreytt frá því sem kynnt var á vorþingi 2018 um það atriði sem skiptir öllu fyrir vernd íslenskra laxastofna. Áhættumat um erfðablöndun skal nú verða pólitískt og sæta gagnrýni fiskeldismanna, fulltrúa ráðherra og fulltrúa sveitarfélaganna á svokölluðum samráðsvettvangi áður en það er staðfest af ráðherra. Með öðrum orðum er áhættumatið orðið pólitískt, selt undir vald ráðherra



Erum ekki neitt að misskilja

Landssambandið leggur því áherslu á að lög um fiskeldi séu skýr og laus við möguleg áhrif pólitísks þrýstings á túlkun þeirra. Jafnframt að þau leiði raunverulega til verndunar á villtum stofnum og hvetji til umhverfisvæns eldis. Landssambandið er ekki að misskilja eitt né neitt í umræddum drögum að breytingum á fiskeldislögum sem lögð voru fram í desember. Það þarf ekki að velta vöngum yfir afleiðingum þess að setja á stofn samráðsvettvang sem er að stórum hluta skipaður af ráðherra án tilnefningar til að gera athugasemdir við áhættumat sem ráðherra er falið að staðfesta. Með því er vernd íslenskra laxastofna ofurseld pólitískum þrýstingi og eins og sagan sýnir hefur það reynst afar illa.

Höfundur er formaður Landssambands veiðifélaga




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×