Skoðun

Alla leið

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Hin íslenska þjóðarsál er alla jafna fremur nöldursöm og gjörn á að æsa sig af minnsta tilefni. Hjá sumum er eins og þessi neikvæðni sé sérstakt áhugamál sem gefi tilverunni meira gildi en ella. Þannig hríslast viss tegund af sælukennd um nöldrarana þegar þeir hafa hellt úr skálum reiði sinnar á netinu eða annars staðar.

Vegna þess hversu áberandi nöldurhneigð þjóðarinnar er þá er alltaf viss léttir þegar hún víkur fyrir gleði og eftirvæntingu. Einmitt þetta gerist ár hvert þegar íslenska þjóðin sameinast í von um árangur í Eurovision. Af einhverjum ástæðum sér hún Eurovision sem stökkpall og mælikvarða á ágæti sitt í samfélagi þjóðanna. Eftir því sem nær dregur keppni stigmagnast ákafinn og nær til allra aldurshópa. Ár hvert má heyra leikskólabörn syngja af innlifun framlag Íslendinga. Óneitanlega var nokkuð krúttlegt að heyra þau syngja af einlægni fyrir örfáum árum: „Burtu með fordóma/og annan eins ósóma.“ Þetta árið kvaka þau af sömu einlægni: „Hatrið mun sigra!“ Einhvern veginn tekst þeim að gera hið ómögulega og fá orðin til að hljóma næstum því krúttlega.

Það skiptir ekki máli hvort fulltrúar Íslands eru leikskólakennarar eða veraldarvant ungt fólk í BDSM-klæðnaði veifandi tilheyrandi tólum og tækjum, þjóðin á sér þá heitustu ósk að þeir komist alla leið. Kaupmenn nýta sér þetta óspart og sýna margs konar snilli við að tengja alls kyns varning við keppnina og selja eins og heitar lummur. Kaupmaðurinn hirðir gróðann og er kampakátur og viðskiptavinurinn ljómar af ánægju með allan Eurovision-varninginn sinn. Semsagt, allir græða.

BDSM hefur aldrei fengið viðlíka auglýsingu og nú. Á heimasíðu samtakanna segir að BDSM standi fyrir: bindingar, drottnun, sadisma, masókisma, skynjun og munalosta. Það munar sannarlega ekki um það! Það gæti reynst nokkuð erfitt að útskýra hvað í þessu felst fyrir leikskóla- og grunnskólabörnum, en í fyllingu tímans munu þau sennilega flest átta sig á merkingunni. BDSM-samtökin geta hins vegar fagnað því að landsmenn mæta BDSM með samblandi af elskusemi, áhuga og forvitni. Einhvern tíma hefði maður haldið að slíkt gæti ekki gerst.

Vonin um sigur í keppninni hefur fylgt Íslendingum frá því þeir tóku fyrst þátt í henni og kannski hafa þeir aldrei verið bjartsýnni en einmitt nú. Endalaust má spyrja hvað það sé sem geri að verkum að þjóðin fær ár hvert Eurovison-æði og þyki keppnin ómissandi menningarviðburður. Það er félagsfræðinga eða djúpsálarfræðinga að greina það. Hver svo sem ástæðan er þá stendur eftir að þegar kemur að Eurovision þá fer þjóðin alla leið. Hún stendur með keppendum, er sjálf í keppnisskapi, heldur Eurovis­ionpartý og gerir vel við sig í mat og drykk – og þetta árið kaupir hún gaddakylfur og leðursvipur og fleira dót sem þykir ómissandi i allri stemningunni.

Þjóðin er allavega í góðu skapi og er óneitanlega skemmtilegri þannig en þegar hún er í nöldurgírnum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×