Skoðun

Íslenskan í athugasemdakerfum

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Fréttir bárust af því í vikunni að olíufélögin N1 og Olís hefðu gripið til þess ráðs að setja upp skilti á íslensku á bensín- og þjónustustöðvum sínum þar sem viðskiptavinir eru beðnir um að sýna erlendu starfsfólki þolinmæði og velvild. Var þetta gert vegna þess fjölda Íslendinga sem á það til að láta í ljós óánægju sína og gagnrýna starfsfólk fyrir íslenskukunnáttu.

Athugasemdakerfi miðlanna loguðu og sýndu fram á nauðsyn skiltanna: „Þegar ég kaupi vöru og þjónustu á Íslandi, er ég ekki kominn til að æfa mig í þýzku, frönsku, ensku eða spænsku.“ – „Lámark [sic] að fá að tala sitt eigið tungumál og að afgreiðslufólk tali Íslensku [sic].“ – „Ég sniðgeng fyrirtæki sem eru með fólk sem talar ekki íslensku.“

Tungumál í samkeppni

Ég bý í Englandi ásamt manni og tveimur börnum. Eins og margir íslenskir foreldrar sem búa erlendis hélt ég í einfeldni minni að börnin yrðu fyrirhafnarlaust jafnvíg á íslensku og ensku. En þvert á það sem ég hafði heyrt verða börn ekki sjálfkrafa tvítyngd. Þótt báðir foreldrar á heimilinu séu íslenskir, tali alltaf íslensku, lesi fyrir börnin á íslensku og hrifsi daglega af þeim Netflix-fjarstýringuna og neyði þau til að horfa á rispaðan DVD-disk með Skoppu og Skrítlu er enskan þeim tamari.

Tungumál í lífi tvítyngdra barna eiga í stöðugri samkeppni. Tungumálið sem er ríkjandi í umhverfi þeirra – tungumálið sem er talað í skólanum, sem vinirnir tala og þau heyra í sjónvarpinu – nær oft yfirhöndinni. Í fjölmenningarsamfélögum eins og í London eru gjarnan starfræktir sérstakir skólar um helgar þar sem börn sem eiga sér annað móðurmál en ensku geta hist, spjallað og lært að lesa og skrifa á móðurmáli sínu.

Nýverið söfnuðust foreldrar íslenskra barna í London saman til að kanna áhugann á að koma á fót íslenskum helgarskóla hér í borg. Undirtektirnar voru miklar og var strax hafist handa við undirbúning. Að mörgu er að huga. Finna þarf ódýrt húsnæði í einni dýrustu borg í heimi, sækja um tilskilin leyfi, ráða kennara og sækja um styrki svo halda megi kostnaði í lágmarki fyrir fjölskyldur. Til að fá yfirsýn yfir hve mörg börn hygðust sækja skólann og hvar í borginni þau byggju svo að finna mætti staðsetningu sem hentaði sem flestum var útbúin þar til gerð vefkönnun. Íslenska sendiráðið í London deildi könnuninni á Facebook-síðu sinni. Ekki er hægt að segja að ein af fyrsta athugasemdunum við Facebook-færsluna um framtakið hafi einkennst af eldmóði: „Er þessi auglýsing bara á ensku?“

 

Þjóðrembingur og minnimáttarkennd

Árið 2016 varð Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar, fyrsta konan af fyrstu kyn­slóð kvenna af erlendum upp­runa til að sitja sem vara­for­seti í for­seta­stól á Alþingi. Kveðjurnar sem hún fékk sendar í tölvupósti í kjölfarið voru langt frá því að geta talist hlýjar: „NÚ ÞARF AÐ TAL­SETJA ALÞINGI! ÉG SKILDI EKKI ORÐ SEM ÞÚ SAGÐIR FRÚ MOSTY!“

Við vitum að íslenskan á undir högg að sækja. Flest erum við sammála um að mikilvægt sé að varðveita hana. En íslenskunni stafar engin ógn af röngum framburði eða einstaka stafsetningarvillu. Íslenskunni stafar engin ógn af þágufallssýki, nokkrum enskuslettum eða starfsmanni í N1 í Borgarnesi sem talar hana ekki. Íslenskunni stafar engin ógn af sjálfboðaliða í London sem ver frítíma sínum í að útbúa eyðublað á ensku svo að íslensk börn í London sem eiga erlent foreldri sem ekki les íslensku fái líka að vera með í íslenskuskólanum. Íslenskunni stafar hins vegar ógn af þóttafullum ruddum sem, útbelgdir af þjóðrembingi og þjakaðir af minnimáttarkennd, nota íslenska tungu til að berja sér á brjóst, upphefja sjálfa sig með því að gera lítið úr öðrum og kæfa í leiðinni löngun og ákafa annarra til að tileinka sér hana, nota hana og leika sér að henni.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×