Skoðun

Hvað er náinn bandamaður?

Þorsteinn Pálsson skrifar
Frá lýðveldisstofnun hafa Bandaríkin verið nánasti bandamaður Íslands. Fyrir því eru margar ástæður.

Bandaríkin réðu úrslitum um alþjóðlega viðurkenningu á stofnun lýðveldisins. Þau deildu sömu grundvallargildum um lýðræði og mannréttindi og við. Þau höfðu forystu um að sameina Evrópuþjóðir á sviði varna og viðskipta. Það var auðna okkar. Og þau ábyrgjast hervarnir Íslands.

Í þessu ljósi hafa Íslendingar eins og aðrar vestrænar þjóðir talað um forseta Bandaríkjanna sem leiðtoga hins frjálsa heims. Eftir að Donald Trump var kjörinn forseti hefur þessi ímynd fölnað svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Nú finnst flestum að það sé tungubrjótur að tala um forseta Bandaríkjanna sem leiðtoga vestrænna gilda og frjálsra þjóða. Þegar ástæðurnar fyrir þessum umskiptum eru allt í einu komnar í norrænt samhengi snertir það enn frekar við tilfinningum margra. Fyrir skömmu gerði forseti Bandaríkjanna tilraun til þess að hafa áhrif á framgang réttvísinnar í Svíþjóð. Og nú sýnir hann Dönum klærnar fyrir þá sök að vilja ekki fara í fasteignaviðskipti með Grænland. Það er langt síðan erlendur þjóðhöfðingi hefur gengið jafn langt í að lítilsvirða norræn gildi.

Sumir segja að þjóðir heims eigi að leiða persónu Trumps hjá sér. Gott væri ef það væri léttur leikur. Það væri líka þægilegt að slá lítilsvirðingunni við grunngildi vestrænna þjóða upp í grín. Ýmsir þjóðarleiðtogar hafa reynt hvort tveggja. En það virkar ekki.

Vandinn er sá að Donald Trump er þjóðkjörinn. Hann talar í nafni mesta efnahags- og herveldis í heimi. Gagnvart öðrum þjóðum er forseti Bandaríkjanna Bandaríkin.

Nú róa Bandaríkin að því öllum árum að losa um efnahags- og viðskiptasamstarf Evrópu. Loforð um stórkostlegan efnahags- og viðskiptasamning við Breta hefur átt drjúgan þátt í því að draga þá út úr Evrópusambandinu og veikja það. Íslendingar eru í hópi þeirra þjóða sem mest tapa á þeim umbrotum öllum.

Jafnvel þótt grunngildi norrænnar lýðræðishefðar séu í húfi þurfa Norðurlönd rétt eins og margar stærri þjóðir að horfa á samskipti við Bandaríkin af sjónarhóli raunsæis.

En á einhverjum tímapunkti hlýtur þessi spurning að vakna: Hvað er náinn bandamaður?




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×