Rafíþróttir

Í beinni: KR og Fylkir áfram í undanúrslit, hvaða lið sigra í kvöld?

Ólafur Hrafn Steinarsson skrifar
Stórmeistaramót Vodafonedeildarinnar

í gær fór fram fyrsta umferð í Stórmeistaramóti Vodafonedeildarinnar, fyrirfram var búist við að engar hræringar myndu eiga sér stað og að lið KR og Fylkis myndu fara í gegn án mótspyrnu. Þvert á við það sem allir bjuggust við fengum við hörkuleik frá nýliðum úrvalsdeildarinnar XY.Esports ásamt því að Tindastóll hélt áfram að koma á óvart.

Leikir dagsins eru Þór Akureyri á móti FH núna klukkan 18:00

Dusty Coolbet á móti Bad Company klukkan 21:00

Tómas Jóhannsson, sérfræðingur um Vodafone-deildina í CS:GO.

,,Það var alveg magnað að sjá áskorendana standa í bestu liðum landsins. Við vorum mikið búnir að velta því fyrir okkur hvort að Tindastóll myndi eiga roð í stórlið KR en það sást að það var mikill skrekkur í þeim að vera mættir í beina útsendingu, þetta eru allt RISA leikir og okkur hlakkar til að sjá meira af Tindastól" sagði Tómas Jóhannsson sérfræðingur í Vodafonedeildinni

Fylkir - XY.Esport 2-0

Fylkir hafa verið stórveldi í CS:GO síðan liðið var stofnað og fyrirfram var búist við að þeir myndu mæta hungraðir til leiks eftir að naumlega misst af deildarsigrinum til Dusty í Vodafonedeildinni, XY.Esports komu á óvart og gáfu þeim heldur betur leik í fyrsta korti.

Kort 1 Dust2

Sniðugt kortaval hjá XY.Esport er þeir velja strax Dust2, kortið býður uppá leik sem þarf ekki of mikla æfingu í og geta því komist upp með að vera ekki jafn samstilltir og æfðir og Fylkir. Það var í höndum Stefán Ingi Guðjónssonar að draga liðið áfram á herðum sér og var í raun allt í öllu í leik Fylkis. Það var eitt atvik sem algerlega snúði leiknum við í stöðunni 11-8 Fylkir voru komnir upp við vegg og taka áhættu fjárfestingu sem svínvirkar og kemur XY.Esport hressilega á óvart. Eftir þetta round komst XY.Esport aldrei aftur inn í leikin og Fylkir sigrar 16 - 8 í kortavali XY.Esport

Kort 2 Train

Það voru fáir að búast við miklu frá XY.Esport í train, þar sem kortið þarf miklu meiri samstillingar og æfingar heldur enn dust2, Fylkir nýttu sér yfirburði sína til hins ýtrasta og sigra fyrri hálfleikin í vörn 13 - 2.

Leikurinn var svo aldrei í vafa fyrir fylki sem kára dæmið eftir 3 snyrtileg round í sókn. 16 - 6 fyrir Fylki sem sýndu að þeir eru ekkert lamb að leika sér við í kortum sem þeir hafa æft.

Maður leiksins Stefán Ingi Guðjónsson einnig þekktur sem Stebbic0c0

KR - Tindastóll

KR á blaði voru taldir líklegir til sigurs og spurningin var sett hvort Tindastóll gæti haldið áfram að koma á óvart. Tindastóll var alls ekki langt frá því að setja KR í hættulega stöðu enn það var einstaklinghæfni hjá Thomas Thomsen og Alexander Egill Guðmundssyni sem létu leikin lýta betur út fyrir KR enn hann hefði hugsanlega átt að fara.

Kort 1 Inferno

KR byrjar leikin af hörku og kemst í 9 - 0 í sókn, í korti sem er vörninni í hag. Það var b megin í vörninni hjá Tindastól sem var alls ekki að virka í byrjun leiks.

Tindastóll nær að klóra í bakkan og endar hálfleikurinn 11 - 4 KR í vil. Tindastóll nær aðeins að vakna í sókninni enn það er einfaldlega orðið alltof seint og leikurinn endar 16 - 10 KR í vil.

Kort 2 Overpass

Tindastóll byrjar vel í sókn og kemst í stöðuna 4 - 2 þegar KR snýr dæminu við og hálfleikurinn endar 9 - 6

Það er svo efnahagurinn hjá Tindastól sem brotnar aftur og aftur í vörninni sem gerir útaf við leikin. Stífar árásir KR inga skila inn sigrinum 16 - 11

Þótt leikirnir hafi endað 16 - 10 og 16 - 11 þarf bara að rýna í tölfræðina til að sjá að tveir bestu leikmenn viðureignarinnar eru báðir hjá Tindastól, það er því ljóst að betra liðið vann.

Maður leiksins

Jón Kristján Jónsson einnig þekktur sem j0n






×