Skoðun

Heggur sú er hlífa skyldi

Vilhjálmur Árnason skrifar

Sú var tíðin að afkoma þjóðarinnar réðst af því hvernig áraði í sjávarútvegi og landbúnaði. Ferðaþjónusta var þá atvinnuvegur sem ýmsir nefndu sem „eitthvað annað“ en hafði litla vigt í stóra samhenginu.

Eftir Eyjafjallajökulsgosið 2010 varð ferðamannasprenging á Íslandi sem dreifðist yfir allt árið, m.a. vegna þess að stjórnvöld tóku þátt í að skapa góð rekstrarskilyrði og ferðaþjónustan varð einn helsti atvinnuvegur landsins. Björgunarbáturinn sem beðið hafði verið eftir frá bankahruni 2008. Ferðaþjónustan er öflugur atvinnuvegur þar sem þrífast fjölmörg fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum og þúsundir landsmanna eiga afkomu sína undir.

Við eigum ferðaþjónustunni margt að þakka og verðum eftir bestu getu að styðja hana í gegnum erfiða tíma. Þess vegna sló það mig að lesa eftirfarandi á fasbókarsíðu Oddnýjar Harðardóttir þingmanns Samfylkingar: „Ég hef frá því að vöxtur ferðaþjónustunnar hófst, gagnrýnt að ferðaþjónustunni hafi verið færðir sérstakir skattastyrkir sem hvati til vaxtar. Úr varð ósjálfbær vöxtur. Ég veit að núna er ekki rétti tíminn í hræðilegu atvinnuleysi og gjaldþrotum ferðaþjónustufyrirtækja, að segja ,,sagði ég ekki". En það er samt næstum komið fram á varirnar.“

Þarna talar þingmaður Suðurkjördæmis – þar sem ferðaþjónustan hefur blómgast hvað best undanfarin ár og þar sem fólk býr nú við 30% atvinnuleysi vegna hruns í ferðaþjónustu. Hvernig getur Oddný Harðardóttir látið annað eins frá sér? Það hlakkar í þingmanni Samfylkingarinnar yfir óförum ferðaþjónustunnar sem hefur ekkert með meinta ósjálfbærni greinarinnar að gera heldur heimsfaraldur sem hefur lamað ferðaþjónustu á heimsvísu. Þetta veit hvert mannsbarn - nema téður þingmaður.

Það er ekkert nýtt að þingmenn Samfylkingar sjái ofsjónum yfir stuðningi við atvinnulífið og vilji skattleggja upp í topp hvern þann sem hagnast af starfsemi sinni. En að leggjast svo lágt að sparka í ferðaþjónustuna meðan hún steinliggur til þess eins að upphefja eigið pólitíska egó hlýtur að vera einhvers konar met í þeim efnum.

Við sjáum að heimsfjölmiðlar fjalla lofsamlega um árangur Íslands í baráttunni við Covid19. Það verður forsenda nýrrar viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Ríkisstjórnin mun áfram styðja ferðaþjónustuna með öflugu markaðsátaki þegar millilandasamgöngur komast í eðlilegra horf. Þegar hagur vænkast á ný skulum við einmitt spyrja að leikslokum; „sagði ég ekki?“

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×