Skoðun

Elítu­væðing Reykja­víkur­borgar

Vigdís Hauksdóttir skrifar

Um síðustu mánaðarmót birtist dæmalaus frétt í Fréttablaðinu þar sem fram kom að embættismenn/starfsmenn á skrifstofu Reykjavíkurborgar hafi ellefu aðgangskort að Vinnustofu Kjarvals, sem er vinnu- og samkomurými við Austurvöll og er kostnaður við kortin um 1,6 milljón króna. Í ljósi þess að Reykjavíkurborg er stór leigutaki á markaði og á þar að auki mikið húsnæði þá kem ég til með að leggja þessar fyrirspurnir fram í borgarráði til skriflegs svars.

1. Er virkilega ekkert húsnæði sem borgin ræður yfir sem getur sinnt þessum þörfum?

2. Er það virkilega svo að vinnuaðstaða starfsfólks í „efsta lagi“ stjórnsýslunnar er svo slæm að grípa þurfti í þetta úrræði?

3. Hvers vegna þarf „efsta lag“ stjórnsýslunnar fundaraðstöðu utan stjórnsýslubygginga borgarinnar?

4. Hvaða embættismenn hafa yfirráð yfir þessum kortum tæmandi talið?

5. Hefur borgarstjóri kort að vinnustofunni?

6. Handhafi korts virðist hafa aðgang að vinnustofunni og veitingaaðstöðu alla daga – er áfengi þar með talið?

7. Í frétt Fréttablaðisins kemur fram að vinnustofan er sérstaklega vel til þess fallin að taka á móti erlendum og innlendum viðskiptamönnum, hitta samstarfsfólk vegna vinnu eða utan hennar, rækta tengsl við aðra og sinna störfum sínum í næði frá dagsins önn. Er það hlutverk útsvarsgreiðenda í Reykjavík að standa undir þessum sérþörfum sem eiga heima á almenna markaðnum en ekki hjá sveitarfélagi?

8. Hvaða erlendu og innlendu viðskiptamenn hafa notið veitinga á kostnað Reykjavíkurborgar og með hvaða embættismönnum/starfsmönnum borgarinnar fengu þeir aðgang, tæmandi talið?

9. Handhafar kortanna eru í forgangi á viðburði í vinnustofunni, hafa handhafar kortanna notfært sér þann forgang, ef svo er hverjir sóttu hvaða viðburð tæmandi talið?

Óskað er eftir nafnalista yfir alla gesti sem sótt hafa staðinn tæmandi talið, hvaða erindi viðkomandi aðilar hafi átt á staðinn og með hvaða starfsmanni/embættismanni þeir komust inn í vinnustofuna.

Efsta lagið í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar er farið að líta á sig sem nokkurs konar elítu á kostnað útsvarsgreiðenda í borginni. Þessi staðreynd er svo svakaleg að mér verður orða vant. Hegðunin speglar það sem gerist í einkafyrirtækjum sem ráða sínum málum sjálf. Hér er um að ræða einstaka ófyrirleitni að ræða sem á ekkert skylt við lögbundið hlutverk sveitarfélags að sinna lögbundnum verkefnum og grunnþjónustu. Spillingin og elítuvæðingin er algjör sérstaklega þegar litið er til þess að aðgangurinn nær til viðveru á staðnum utan vinnutíma.

Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×