Hótaði að drepa nágranna sína Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. janúar 2020 06:49 Breiðholt í vetrarham. vísir/vilhelm
Þrír voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ofbeldisbrota. Óskað var eftir aðstoð lögreglu á ellefta tímanum í gærkvöld vegna manns í annarlegu ástandi sem hótaði að drepa nágranna sína í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Í skeyti lögreglu segir að maðurinn hafi verið handtekinn og hann vistaður í fangageymslu. Fyrr um kvöldið hafði verið tilkynnt um líkamsárás í Árbæ, þar veittist ölvaður maður að ökumanni sem hafði gert athugasemd við að hinn ölvaði stæði úti á miðri götu og truflaði umferð. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar í nágrenninu en hann hafði reynt að fela sig í nærliggjandi atvinnuhúsnæði. Sá fékk einnig að gista á Hverfisgötunni. Áverkar ökumannsins eru sagðir minniháttar. Sá þriðji var síðan handtekinn um klukkan eitt í nótt. Þar var um að ræða karlmann á þrítugsaldri sem staðinn var að verki af almennum borgara við að brjótast inn í bíla. Þjófurinn ógnaði vitninu með hnífi en var handtekinn skömmu síðar. Við leit á honum fundust meint fíkniefni, þýfi og hnúajárn að sögn lögreglu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Innlent Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Innlent Biden náðar son sinn Erlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Innlent Beiðni um endurtalningu borist og talningarmenn á tánum Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent „Maður er einhvern veginn í spennufalli“ Innlent Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Veður Fleiri fréttir Sósíalistar hefðu ekki komist inn í Noregi og Svíþjóð Lögreglan fylgist vel með ástandinu í Ölfusá „Maður er einhvern veginn í spennufalli“ Beiðni um endurtalningu borist og talningarmenn á tánum Vegir víða á óvissustigi Formenn funda með forseta Lýsir eftir vitnum á Seltjarnarnesi Segir gríðarleg tregðulögmál að verki á þinginu Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Sjá meira