Skoðun

Besta leiðin til að tækla ó­þolandi fólk

Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Þegar við hugleiðum æfum við okkur í því að stjórna huganum og fáum til dæmis meira vald yfir þeim hluta heilans sem tekur ósjálfáðar ákvarðanir. Það hefur meira að segja verið vísindalega sannað að eðluheilinn minkar við það að iðka hugleiðslu. 

Það eru ótal markað aðferðir við það að hugleiða en margir hugsa oftast um það að maður verði að sitja í óþægilegri stellingu með lokuð augun en það er alls ekki nauðsynlegt þó það sé vissulega áhrifaríkt. Flow býður til dæmis upp á hugleiðslur þar sem maður hristir líkamann, öskrar og svo notum við allskonar skemmtilegar tæknilausnir líka. 

Eitt sem er mjög einfalt að gera er til dæmis að nota möntrur í hugleiðslu en það þarf ekki að vera óskiljanlegur texti á framandi tungumáli. Mig langar að gefa þér möntruna sem ég er að nota í dag. Hún er svona: Ég er jákvæð, dugleg og sanngjörn. Þessa möntru segi ég í huganum nokkrum sinnum í dag. Til dæmis þegar ég labba að kaffivélinni í vinnunni þá endurtek ég í huganum: Ég er jákvæð, dugleg og sangjörn. Stundum endurtek ég þetta upphátt, til dæmis ef ég er ein í bílnum en það er um það bil það flippaðasta sem ég geri með þessa möntru. Þessi orð eru líka alls ekkert heilög og það má nota hvaða orð sem maður tengir við í það og það skiptið. 

Einn dag í síðust viku hafði ég valið mér önnur orð: Ég er róleg, glöð og þolinmóð. Þann dag hitti ég erfða eða bara óþolandi manneskju. Æ þið vitið manneskju sem var kannski ekki beint dónaleg við mig en hefði getað stolið gleðinni minni því hún var að eiga eitthvað erfiðan dag. 

Þá gat ég snúið möntrunni minni við og hugsað hana til viðkomandi á meðan hann sagði mér í óspurðum fréttum að það væri óþolandi að búa á þessu ömurlega landi, ríkisstjórnin, lægðin, verðlagið og eitthvað meira. Ég hugsaði á meðan: Ég óska þess að sért rólegur, glaður og þolinmóður. 

Það gerðist ekkert undravert við þetta. Viðkomandi breyttist ekki eins og fyrir töfra en það sem breytist gerist innra með mér. Ég dustaði leiðindin af mér eins og regndropa af goretex jakka og hélt áfram út í daginn róleg, glöð og þolinmóð.

Höfundur er framkvæmdastjóri Flow.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×