Skoðun

Bent á afglöp

Jón Kaldal skrifar

Staðreynd: í viðskiptum með eignarhluti í fyrirtækjum sem halda á leyfum til að stunda sjókvíaeldi við Ísland hafa örfáir einstaklingar og félög þeim tengd hagnast um marga milljarða króna á undanförnum árum. Þessum leyfum hefur íslenska ríkið hins vegar úthlutað svo til án þess að greiðsla hafi komið fyrir þau ríkissjóð. Hátt verð fyrirtækjanna, sem náðu að tryggja sér þau, myndast af þeim þekktu markaðskröftum að leyfin eru takmörkuð auðlind og eftirspurnin er meiri en framboðið.

Mat markaðarins

Alþingismaðurinn fyrrverandi Kristinn H. Gunnarsson sakar - af sinni alkunnu stillingu - Gunnlaug Stefánsson, fyrrverandi presti í Heydölum, um ósannindi í grein hér á Vísi fyrir að benda á þessi afglöp: að afhenda fáum svotil ókeypis afnotarétt á auðlindum almennings, sama rétt þeir hafa svo selt áfram fyrir milljarða króna.

Í ásökunum sínum í garð séra Gunnlaugs hengir Kristinn sig í að hér á landi eru leyfin gefin út tímabundið en í Noregi eru ekki tímamörk við útgáfu þeirra. Í báðum löndum eru leyfin háð því að starfsemin sé stunduð eftir lögum og reglum. Ef ekki þá er hægt að fella þau niður. Hér eru þau svo endurútgefin ef eftirlitsstofnanir meta svo að skilyrðum sé fullnægt.

Auðvelt er að bera saman hvernig markaðurinn verðmetur leyfin út frá þessum mismunandi aðferðum við útgáfu þeirra. Í stuttu máli breytir þetta engu. Þeir sem eru að kaupa hlut í sjókvíeldisfyrirtækjum hér nota norska verðmatið í þeim viðskiptum. Þannig gerir enginn ráð fyrir að leyfin hverfi eftir 16 ár heldur að þau verði endurnýjuð í önnur 16. Án greiðslu.

Leyfin eru sem sagt þau verðmætin sem verið er að greiða fyrir. Í Noregi eru leyfin boðin upp og gríðarlegar upphæðir greiddar fyrir þau. Hér eru leyfin enn afhent fyrir nánast ekki neitt.

Misskilningur Kristins

Kristinn lætur að því liggja í grein sinni að þau 20 SDR (um 4.000 krónur) sem greitt er fyrir hvert framleitt tonn í sjó á hverju ári, sé endurgjald fyrir leyfin. Það er mikill misskilningur að svo sé. Þetta er upphæð sem sjókvíaeldisfyrirtækjunum er skylt að greiða í Umhverfissjóðs sjókvíaeldisins en meginmarkmið hans „er að lágmarka umhverfisáhrif af völdum sjókvíaeldis“. Þetta gjald fer sem sagt upp í þann kostnað sem fellur á opinberar stofnanir og eftir atvikum aðra af þessari mengandi starfsemi.

Gerum betur

Hvernig farið er með aðgang að takmörkuðum auðlindum í eigum almennings er sannarlega sígilt áhyggjuefni. Enn alvarlegra er þó fyrirséður varanlegur skaði á umhverfi og lífríki landsins vegna sjókvíaeldsins. Í skjóli skjótfengins gróða fárra er að vaxa hér starfsemi þar sem mengun er leyft að streyma beint úr netmöskvum sjókvíanna í hafið og eldislax af norskum uppruna ógnar viðkvæmum villtum laxastofnunum landsins. Við verðum að gera betur.

Höfundur er félagi í Íslenska náttúruverndarsjóðnum - The Icelandic Wildlife Fund.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×