Skoðun

Hvernig þjóð­fé­lag viljum við?

Árný Björg Blandon skrifar

Þegar ég fór að sofa í gærkvöldi var ég bæði reið og leið en ég bægði því frá mér til að geta sofið almennilega, sem og ég gerði sem betur fer.

Í morgun þegar ég vaknaði var ég ekki eins reið en ég var mjög leið.

Það sem olli þessu í byrjun var myndin sem ég sá á Mbl.is, af fjölskyldunni frá Senegal sem á nú að reka úr landi þótt þau hafi búið hér í 7 ár og eignast 2 börn á þessu tímabili.

En, leiðinn stoppaði ekki þar. Ég fór að hugsa um allt það fólk hér á landi sem á erfitt með að bera höfuðið hátt þegar það stendur fyrir framan Rauða krossinn og/eða Mæðrastyrksnefnd af því að það hefur ekki það viðurværi sem þau þurfa fyrir sig og börnin sín. Það nístir hjarta mitt.

Og leiðinn heldur áfram þegar ég hugsa um allt fólkið sem hefur þurft að hætta að vinna og eldra fólkið sem lætur af störfum og þurfa að lifa ýmist á örorkubótum, lífeyrissjóðum og ellilífeyri sem eru svo skorin við nögl að það hálfa væri nóg. Svo er þeim refsað fyrir að reyna að bæta tekjurnar á einhvern hátt með því að að rýra bæturnar þeirra.

Eitt enn sem fékk leiðann til að rísa var hugsunin um Alþingi Íslendinga sem að mínu mati er ábyrgt fyrir þessu. Það getur alveg breytt lögum til að fólk geti lifað rúmlega sómasamlegu lífi fjárhagslega.

Svo kom ein hugsun fljúgandi. Hvað myndi Alþingi gera ef þau stæðu frammi fyrir því að missa húsnæðið sitt, þurfa að skera við nögl til að eiga steik á sunnudögum og þyrftu jafnvel að ná sér í aðstoð frá Mæðrastyrksnefnd og/eða Rauða krossinum.

Myndu þau þá breyta lögum?

Síðasta hugsunin var, hvort er dýrmætara, mannslíf eða byggingar og breytingar?

Hvar erum við stödd sem þjóðfélag? Það eru allt of margir í hvínandi þörf til lífsviðurværis.

Alþingi Íslendinga, hættið að refsa fólki fyrir að vera veikt, fatlað og gamalt. Það er bara hreint út ljótt. Og hættið að lofa öllu fögru fyrir kosningar. Farið að standa við loforðin og ríflega það!

Höfundur er þýðandi og textaritari.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×