Rafíþróttir

Ísland mætir Rúmeníu í FIFA 20 fimmtudaginn 26. mars

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenski landsliðsbúningurinn í klefanum á Laugardalsvelli.
Íslenski landsliðsbúningurinn í klefanum á Laugardalsvelli. Getty/Alexander Scheuber

Ísland átti að mæta Rúmeníu í umspili um sæti á EM 2020 á fimmtudaginn kemur en þjóðirnar munu mætast á öðrum vettvangi á þessum degi eftir að fótboltaleiknum var frestað vegna kórónuveirunnar.

Ísland og Rúmenía munu nefnilega leika vináttuleiki í FIFA 20 tölvuleiknum fimmtudaginn 26. mars, en þetta kemur fram á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.

Umspilsleikur Íslands og Rúmeníu var færður til um rúma tvo mánuði en liðin spila þar um að fá tækifæri til að spila hreinan úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu sem hefur verið fært til sumarsins 2021.

Leikir í umspili um sæti í lokakeppninni eru nú áætlaðir 4. júní (undanúrslitaleikir) og 9. júní (úrslitaleikur). Þar með er ljóst að áætlað er að leikur Íslands og Rúmeníu fari fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 4. júní.

FIFA tölvulandsleikurinn í Laugaralnum verður aftur á móti á fimmtudaginn og hefst klukkan 16:30, en Aron Þormar Lárusson og Jóhann Ólafur Jóhannsson, sem léku með landsliði Íslands í PES í undankeppni eEURO 2020, munu skipa lið Íslands í leiknum.

Leiknir verða tveir leikir og úrslit svo lögð saman. Stefnt er að því að sýna beint frá leikjunum á miðlum KSÍ.






×