Skoðun

Krefjast viðræðna við forsætisráðherra um spilakassa

Alma Hafsteinsdóttir skrifar

Til ríkisstjórnar Íslands, b/t Katrín Jakobsdóttir

Bréf þetta sendum við forsætisráðherra vegna þess að efni bréfsins heyrir undir fleiri en eitt ráðuneyti en það snýr að rekstri spilakassa og spilasala ásamt málefnum spilafíkla.

Hinn 16. mars 2020 var tekin ákvörðun um að loka spilasölum og spilakössum vegna smithættu af völdum Covid-19 faraldursins. Nú er komin nokkur reynsla af þessari lokun þó að ekki sé ýkja langt um liðið. Það er sóttvarnaryfirvalda að meta þessa lokun út frá smithættu en ástæða er til að benda jafnframt á aðra þætti sem snerta lýðheilsu, efnahagsleg áhrif og samfélagslega ábyrgð og tengjast þessum mjög svo vafasama rekstri á spilakössum.

Samtökin hafa fengið ábendingar frá spilafíklum svo og atvinnurekendum sem staðhæfa að lokun spilakassanna hafi þegar haft merkjanleg mjög jákvæð áhrif. Spilafíklar hafa sagt að lokunin sé þeim sem frelsun og atvinnurekendur, sem hafa í sinni vinnu einstaklinga sem eiga við spilafíkn að stríða, segja að lokunin hafi í för með sér bætta líðan, minni fjarveru og fyrir vikið bættan vinnuanda. Þá hafa aðstandendur spilafíkla sagt að innan veggja heimilis hafi lokunin haft mjög jákvæð áhrif og hafa fjármunir verið að skila sér í heimilisrekstur og í grunnþarfir svo sem greiðslur á húsnæði og matarinnkaup.

Á tímum þrenginga og angistar margra þarf að mati samtakanna að hyggja sérstaklega að þessum þætti lýðheilsunnar, andlegri líðan fólks og fjárhagslegum afleiðingum. Hvernig styrkja megi einstaklinga og fjölskyldur og stuðla að velferð í samfélagi okkar almennt.

Að sjálfsögðu væri farsælast að opna hvorki fyrir spilun í einstökum spilakössum eða í spilasölum fyrr en búið er að gera viðeigandi breytingar á aðgengi og takmörkunum hvað varðar upphæðir og tíma sem hægt er að eyða í þessa spilakassa. Mikilvægt er að hafa þann hátt á að spilafíklar verði ekki skildir eftir berskjaldaðir að glíma við fíkn sína, eins og því miður hefur verið síðan árið 1993.

Samtökin óska því strax eftir viðræðum við stjórnvöld um hvaða fyrirkomulag megi hafa og hvaða reglum beri að hlíta fari svo að banni á spilakassa verði aflétt.

Því fyrr sem þessar viðræður gætu hafist þeim mun betra, en það liggur í augum uppi að þær þurfa að eiga sér stað áður en til umræðu kemur hvort og þá hvenær aflétta eigi banninu.

Höfundur er formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn og skrifar fyrir hönd stjórnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×