Skoðun

Hetjurnar okkar

Brynhildur Björnsdóttir og Elva Hrönn Hjartardóttir skrifa

Hugmyndir um staðalmyndir kynjanna eru áþreifanlegar í samfélaginu og ýta undir og viðhalda misrétti. Á þeim byggir líka hetjudýrkun á þekktum einstaklingum af karlkyni eins og tónlistarmönnum, útrásarvíkingum og afreksmönnum í íþróttum, einkum þó fótbolta sem oftar en ekki eru kallaðir „fótboltagoðsagnir“, „knattspyrnuhetjur“ og þó oftast ,,strákarnir okkar.“ .

Virðing og samþykki

Síðustu daga höfum við séð að hetjudýrkun, gerendameðvirkni og þöggun virðast ekki eiga sér nein mörk þegar kemur að þekktum karlmönnum í samfélaginu og þá sérstaklega afreksmönnum í fótbolta. Sú eitraða karlmennska sem við höfum séð að fær að þrífast innan stórra félagasamtaka smitar út frá sér í samfélagið allt. Hvaðan kemur þetta viðhorf og hvers vegna bregst svo stór hluti samfélagsins við ásökunum í garð þekktra karlmanna, nú síðast í tilfelli íþróttamanna, með afneitun og reynir að gera málflutning þolenda tortryggilegan með öllum ráðum? Getur verið að rótin liggi í búningsklefamenningu eins og ítrekað hefur verið bent á? Er þetta kannski stærra mál en sem nemur afsögn eins formanns eða tiltekt innan einna samtaka?

Kynferðisofbeldi er samfélagslegt mein og sömu sögu er að segja um þöggun og gerendameðvirkni. Við sem samfélag þurfum að leggjast á eitt og ýta undir- og viðhalda menningu sem byggir á virðingu og samþykki en ekki drottnun og ofbeldi.

Það er til marks um breyttan veruleika hversu mörg hafa stigið fram undanfarna mánuði, ekki bara í þessu tilfelli heldur fleirum, lýst stuðningi við þolendur og í þessu tilfelli skorað á forsvarsfólk KSÍ að gera betur. En hér er ekki nóg að einn formaður segi af sér eða ein samtök biðjist afsökunar. Á meðan svona mál koma upp aftur og aftur og viðbrögðin við þeim eru þau sömu í hvert skipti er ljóst að vandinn liggur miklu dýpra. Og hann þarf að uppræta.

Upprætum kynjamisrétti og kynferðis- og kynbundið ofbeldi

Vinstrihreyfingin – grænt framboð einsetur sér að uppræta allar birtingarmyndir kynjamisréttis í samfélaginu og brjóta þannig upp kynjakerfi sem er skaðlegt fyrir stöðu, tækifæri og þátttöku allra. Þannig sköpum við betra samfélag fyrir okkur öll óháð kyni. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur lagt margar mikilvægar vörður í átt að þeim markmiðum. Þannig hefur til dæmis Istanbúl samningurinn, samningur um forvarnir og baráttu gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum, verið fullgildur á kjörtímabilinu, forvarnaáætlun gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni hefur verið hrint af stað og stafrænt kynferðislegt ofbeldi og umsáturseinelti hafa verið gerð refsiverð. Á þessari braut viljum við í VG halda áfram; með skýra stefnu að leiðarljósi og alvöru aðgerðir sem skila árangri.

Það er kominn tími til að endurskilgreina hetjur og goðsögur. Hetjur nútímans eru þolendur kynferðisofbeldis sem stíga fram og segja frá til að ná fram réttlæti og til að setja fordæmi. Goðsagnakennd frammistaða er þegar fólk tekur slaginn, skorar dreka kvenfyrirlitningar og kynferðisofbeldis á hólm í fjölmiðlum, í umræðunni og á öllum leikvöngum þar sem hægt er að berjast. Fólk sem berst gegn hvers kyns misrétti og óréttlátri valdbeitingu, það eru hetjur og goðsögur okkar tíma.

Höfundar eru í 4. og 5. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×