Skoðun

Færum valdið nær fólkinu

Starri Reynisson skrifar

Val er grundvallarforenda frelsis. Því fleiri raunhæfum valkostum sem einstaklingurinn stendur frammi fyrir, því meira er frelsi hans. Þessi hugsun á við alla þætti mannlífs, ekki síst búsetu.

Í frjálslyndu samfélagi þarf fólk að hafa raunhæfa valkosti um hvar það býr sér heimili. Til að svo megi verða þarf blómlega byggð landið um kring, það þarf að tryggja jöfn tækifæri til náms og starfs, frjóan jarðveg fyrir nýsköpun og menningu og gott aðgengi að öflugri nærþjónustu. Uppstokkun og efling sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins er lykilskref til að auka samkeppnishæfni þeirra um íbúa gagnvart höfuðborgarsvæðinu.

Það þarf að auka aðkomu sveitarfélaga að lykilákvörðunum um uppbyggingu í heimabyggð, ekki síst gagnvart samgöngum og uppbyggingu atvinnutækifæra. Í því ljósi er nauðsynlegt að skoða vel tilfærslu verkefna frá ríkinu til sveitarfélaga, og tryggja að fjármagn fylgi ávallt slíkum tilfærslum. Tekjugrunnur sveitarfélaga er of veikur og ótryggur sem stendur. Það hefur lengi verið brýn nauðsyn að endurskoða hann. Það að láta gistináttagjaldið renna til sveitarfélaganna hefur gjarnan verið nefnt sem möguleg lausn, hún er þó ófullkomin að því leyti að það búa ekki öll sveitarfélög við mikinn eða stöðugan ferðamannastraum. Mun líklegra til árangurs þvert á heildina væri að láta hluta af fjármagnstekjuskatti renna til sveitarfélaganna, svo dæmi sé tekið.

Stærsta forsenda þess að raunveruleg, stór skref verði stigin í eflingu sveitarstjórnarstigsins er samt skýr stefna um sameiningu sveitarfélaga. Markmið slíkrar vegferðar á allta að vera að draga úr yfirbyggingu og efla nærþjónustu á sem hagkvæmastan hátt. Það eitt og sér styrkir tekjugrunn sveitarfélaga, jafnar samkeppnisstöðu þeirra og opnar á aukin tækifæri til að færa verkefni sem snúa að nærþjónustu og uppbyggingu nærumhverfisins frá ríkinu til sveitarfélaganna. Þannig, með öflugri sveitarfélögum og aukinni hlutdeild þeirra í þjónustu við íbúa og ákvarðanatöku um uppbyggingu innan þeirra, eflum við sveitarfélögin og dreifum valdi hins opinbera betur um landið, færum það nær íbúum og gefum þeim betri möguleika á að hafa áhrif á sitt nærumhverfi.

Höfundur er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar og skipar 3. sæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×