Skoðun

Lýð­ræði í utan­ríkis­málum?

Guttormur Þorsteinsson skrifar

Ein helsta krafa Sósíalistaflokksins er að völdin verði færð til fólksins, að almenningur fái yfirráð yfir auðlindum landsins, ákvörðunarrétt á sínum vinnustað og rödd hjá þeim stofnunum sem eiga að þjóna okkur. Þar eru utanríkismálin ekki undanskilin en þau eru það svið stjórnmálanna sem hefur einna helst verið tekið út fyrir sviga í lýðræðislegri umfjöllun.

Það er löng hefð fyrir því á Íslandi að hleypa fólki ekki að þessu mikilvæga máli, alveg frá því að gengið var í Atlantshafsbandalagið árið 1949 án nokkurs samráðs við almenning, sem lét samt í sér heyra á Austurvelli. Nú, meira en sjötíu árum síðar erum við enn í þessu hernaðarbandalagi sem hefur fyrir löngu glatað upprunalegu hlutverki sínu. Eitt af þeim verkefnum sem reynt var að finna bandalaginu eftir lok kalda stríðsins var að hersetja Afganistan eftir að Bandaríkjamenn réðust þar inn í hefndarför eftir 11. september. Nú er þeirri sneypuför lokið og í stað þess að taka þátt í frekari tilraunum hernaðarbandalagsins til að réttlæta tilveru sína ætti að gefa íslensku þjóðinni kost á því að segja loks hug sinn. Viljum við virkilega tilheyra bandalagi sem dregur okkur inn í sjálfsmorðsárás á markaði í Kabúl, sem stoppar okkur frá því að banna kjarnorkuvopn og skaffar morðtólum eins og B-2 sprengjuflugvélum og F-35 orrustuflugvélum íslenska náttúru til þess að æfa sig yfir með tilheyrandi mengun og hávaða?

Það er augljóst hvaða afstöðu hægriflokkarnir hafa. Þeir styðja þetta hernaðarbrölt og vilja helst auka það með frekari uppbyggingu hernaðarmannvirkja. Það kemur hinsvegar á óvart hversu lítið fer fyrir friðarmálum vinstra megin við miðju. Samfylkingin heldur enn í kaldastríðspólitík sósíaldemókrata og telur Nató-aðild lykilþátt í þjóðaröryggisstefnu landsins. Píratar eru nýbúnir að mynda sér utanríkisstefnu og segja að rödd þjóðarinnar ætti að heyrast en ganga ekki skrefið til fulls og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu eða taka afstöðu gegn Nató. Vinstri græn hafa lengi verið eini flokkurinn á þingi sem hefur það á stefnuskrá að yfirgefa bandalagið og einstakir þingmenn hafa talað fyrir því, en við stjórnarmyndun hefur því alltaf verið sópað undir teppi og stuðningsmönnum hernaðarbandalagsins falið utanríkisráðuneytið möglunarlaust.

Þar kemur að einhverjum mesta lýðræðishalla málaflokksins. Utanríkisráðuneytið er næstum einrátt um varnarmál í landinu. Ráðherranum ber aðeins skylda til þess að bera mikilvægustu mál undir utanríkismálanefnd og þar fer allt fram fjarri augum almennings eða jafnvel óbreyttra þingmanna. Meira að segja þessi skylda hefur oft verið hunsuð, t.d. þegar Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson ákváðu einir að styðja innrásina í Írak. Utanríkisráðherrar síðustu ára hafa svo samþykkt breytingar á varnarsamningnum við Bandaríkin án nokkurrar lýðræðislegrar umræðu. Þar með er Bandaríkjaher selt sjálfdæmi um uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli og það gengur gegn öllum fagurgala um að Ísland standi gegn vígvæðingu á Norðurslóðum.

Sósíalistaflokkurinn vill að almenningur fái að ráða, líka í utanríkismálum. Burt með leyndarhyggjuna, hernaðarbröltið og fylgisspektina við heimsvaldastefnu Atlantshafsbandalagsins!

Höfundur er í 10. sæti Sósíalistaflokksins í Reykjavík-norður og formaður Samtaka hernaðarandstæðinga.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×