Skoðun

Á­byrg framtið-xY

Ari Tryggvason skrifar

Senn líður að kosningum til Alþingis, kosningar í kjölfar fordæmalausra tíma í sögu þjóðarinnar. Undanfarið eitt og hálft ár hefur gildismati okkar verið snúið á haus. Það sem þótti óhugsandi áður er norm dagsins í dag. Það sem þóttu sjálfsögð réttindi, að gera það sem fólk vildi í dagsins önn og í fríum, þykir nú eðlilegt að okkur sé skammtað líkt og um munaðarvöru væri að ræða. Frelsi okkar á aldrei að vera umsemjanlegt.

Þrátt fyrir þessar fordæmalausu skerðingar eru þær hvergi á dagskrá kosningabaráttunnar. Í lok ágúst sagðist formaður eins stjórnarflokksins hvorki óttast dóm sögunnar né dóm kjósenda og ekki heldur að kórónuveiran yrði að kosningamáli. Þetta eru athyglisverð orð í ljósi þeirra fórna sem landsmenn hafa mátt færa á altari kórónuveirunnar. Við eigum að láta sem ekkert sé. Svo virðist sem enn ein kúlan hafi séð dagsins ljós; Draumakúlan. Eitt framboð sker sig þó úr; Ábyrg framtíð. Við viljum ekki vera í neinni kúlu, heldur ætlum við að vera í kúlulausum raunveruleika. Við viljum splundra þessari kosningakúlu með þremur ófrávíkjanlegum loforðum:

  1. Endum fárið. Allri valdbeitingu hætt. Leyfum snemmmeðferðir og beitum stýrðri vernd. Bóluefnatilraunir barna lúti reglum um lyfjatilraunir.
  2. Gagnsætt uppgjör. Öll vafaatriði fái úrskurð dómstóla, gagnsæ rannsókn gerð á skaða sóttvarnaraðgerða og brotlegir látnir sæta ábyrgð.
  3. Eflum tjáningarfrelsið. Fólk ráði til hvaða fjölmiðils eða menningarefnis útvarpsgjaldið renni.

Haldið áfram þrátt fyrir aðvaranir þriggja lækna

Seinni part ágústs birtust nokkrar greinar í Morgunblaðinu þar sem fjallað var um bólusetningar vegna kórónuveirunnar. Tveir hjartalæknar vöruðu þar við því að sprauta börn vegna þess að það gæti valdið varanlegum skaða á hjartavöðvanum sem kæmi oft ekki í ljós fyrr en að mörgum árum liðnum. Viku síðar birtist grein í sama miðli eftir heimilislækni þar sem einnig var varað við þessum bólusetningum barna vegna kórónuveirunnar. Það breytti engu, haldið var áfram eins og ekkert hefði í skorist og fólk boðið í Laugardalshöllina með bros á vör í ˶bólusetningardiskó˝.

Það vita það allir sem vilja, að mikið þarf til svo læknar finni sig knúna til að fjalla um slíka hluti. Íslenskur almenningur á eftir að átta sig á því að hann var vélaður í tilraunasprautur og allar sóttvarnaraðgerðir voru hluti þeirra vélráða. Íslensk stjórnvöld tryggðu sér 1,4 milljón skammta af bóluefnum strax í upphafi. Ennfremur voru sóttvarnaraðgerðirnar á skjön við alla þá þekkingu sem við höfum öðlast í faraldsfræði í gegnum tíðina. Má því nefndur flokksformaður bæði óttast dóm sögunnar og dóm kjósenda. Í ljósi alls þessa er bara einn raunveruleiki til, að merkja með x-i við Y, Ábyrga framtíð nema fólk vilji halda áfram með kúlu-samfélagið.

Höfundur er frambjóðandi í þriðja sæti í Rvk.-N fyrir Ábyrga framtíð.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×