Skoðun

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Björn Leví Gunnarsson skrifar

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að við hlífum fátækum við skattlagningu og aukum byrðarnar eftir því sem bökin verða breiðari. Hins vegar að við verðlaunum það sem er umhverfisvænt og grænt.

Það þýðir að viljum t.d. lækka skatta á:

  • Launatekjur undir 1.225 þúsund krónur á mánuði
  • Örorku- og ellilífeyrisþega
  • Umhverfisvæna vörur og þjónustu
  • Græn sprotafyrirtæki
  • Lítil, loftslagsvæn fyrirtæki

Og við viljum hækka skatta á:

  • Launatekjur yfir 1.225 þúsund krónur á mánuði
  • Ofurauð
  • Arð og fjármagnstekjur
  • Hagnaðardrifna auðlindanýtingu eins og sjávarútveg og stóriðju
  • Mengun og óumhverfisvæn stórfyrirtæki

Skattalækkun fyrir rúm 90% launþega

Nokkur umræða hefur verið um tillögur Pírata í skattamálum, ekki síst vegna þess að okkur yfirsást skekkja í fyrstu útreikningunum okkar. Leiðindaklúður sem við brugðumst við eins og við viljum að stjórnmálafólk geri: Þökkuðum fyrir ábendinguna og leiðréttum villuna strax. Skítur skeður og ekkert kjaftæði.

Ég ók framhjá strætóskýli á dögunum þar sem vakin var athygli á hugmynd okkar um að hækka efsta skattþrepið. Í þeirri umræðu allri hefur hins vegar algjörlega gleymst - viljandi eða ekki - að útskýra hver afraksturinn er af þessari hækkun.

Eins og fyrr segir vilja Píratar hlífa fólki með lægri tekjur. Þess vegna leggjum við til að hækka persónuafslátt um 20 þúsund krónur - sem nýtist hinum fátækari miklu, miklu betur en fólki á ofurlaunum. Til þess að fjármagna það leggjum við til, ásamt aðgerðum eins og bættu eftirliti gegn skattaundanskotum og róttækum breytingum í sjávarútvegi, að fjármagna þessa skattalækkun fyrir fátækt fólk með því að auka byrðarnar á hin auðugu.

Samspil hærri persónuafsláttar og hærra skattþreps þýðir að öll þau sem eru með lægri laun heldur en þingmenn fá skattalækkun. Ef þú ert með með minna en 1225 þúsund krónur í laun á mánuði - eins og langflestir Íslendingar - þá muntu hafa meira á milli handanna í hverjum mánuði ef tillögur Pírata yrðu að veruleika. Þingmenn og ráðherrar greiða hærri skatt fyrir vikið en við höfum alveg efni á því. Þessu til viðbótar ætlum við hefja undirbúning að útgreiðslu persónuafsláttar handa þeim sem nýta hann ekki. Það mun gagnast tekjulausum, eins og námsfólki, sérstaklega vel.

Sterkt umboð

Nýleg könnun sýnir að meirihluti almennings telur það á ábyrgð stjórnvalda að minnka tekjumun, auk þess sem meirihluti landsmanna styður hátekjuskatt. 82% telur að tekjumunur sé of mikill hér á landi samkvæmt rannsókninni og um það bil sjö af hverjum tíu telur að ríkisvaldið ætti að beita sér til þess að minnka þennan tekjumun.

Þetta finnst okkur Pírötum til marks um að hugmyndir okkar um stigvaxandi skattkerfi - þar sem breiðari bökin styðja hin fátæku - eigi góðan hljómgrunn meðal þjóðarinnar. Það hvetur okkur áfram til að vinna áfram í þessa átt og tala fyrir hugmyndum í skattamálum sem nýtast þeim best sem minnst hafa. Það er fyrirsjáanlegt að einhverjir bendi einungis á þann hluta skattsins sem hækkar og hunsi stóra hlutann sem lækkar, það er klassísk gamaldags pólitík sem Píratar hafa ekki áhuga á. Takið upplýstar ákvarðanir og veljið Pírata og hækkun á persónuafslætti.

Höfundur er þingmaður Pírata og oddviti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×