Skoðun

Fram­bjóðandi í hluta­starfi

Bára Halldórsdóttir skrifar

Eins og margir vita er ég frambjóðandi fyrir Sósíalista í Reykjavík Suður, það hefur þó ekki sést mikið til mín í aðdraganda kosninga og spilar þar mest inn veikindi mín. Ég er öryrki og sjúklingur og get því bara sinnt störfum frambjóðanda í hlutastarfi samhliða mínum sjúkdómi.

Margir hafa látið í sér heyra í gegnum þessa kosningabaráttu að fólk eins og ég, fátækir, langveikir, fatlaðir, öryrkjar og eldri borgarar geti ekki sinnt starfi þingmans. Afhverju ætti fulltrúi þessa hópa ekki að vera inn á borði allra helstu nefnda og ráða sem fjalla um málefni þeirra? Best er að hafa að leiðarljósi þessa einföldu setningu; ekkert um okkur án okkar!

Í okkar samfélagi er örlítið svigrúm fyrir öryrkja að vinna samhliða bótum. Það svigrúm mætti að sjálfsögðu vera meira og kerfið mætti vera hvetjandi frekar en letjandi. Á Alþingi er t.d. ekki gert ráð fyrir einstaklingum í hlutastarfi,þ.e. einstaklingum sem þurfa meiri stuðning en aðrir. Umhverfi kosninganna, kosningabaráttan, þingseta, varaþingmennska eða aðrir kimar pólitískra starfa gefa ekki kost á hlutastarfi.

Kerfið gefur heldur ekki kost á aðstoðinni sem er þörf á, einstaklingar sem þurfa aðstoð frá kerfinu þurfa sífellt að berjast við að fá þá þjónustu sem þeir eru metnir af kerfinu til þess að þurfa. Ef einstaklingur er metinn til þess að þurfa 40 klst á mánuði í stuðning er alls ekki víst að hægt sé að fá allan þann tíma úthlutaðan. Þjónustuþörfin er 40 klst en kerfið hefur ekki mannaflann, peningana eða getuna til að úthluta þessum 40 klst. Þess í stað fær einstaklingurinn einungis hluta af aðstoðinni sem hann þarf samkvæmt mai. Þetta og margt annað spilar inní að fólk eins og ég geta ekki sinnt starfi frambjóðanda nema í hlutastarfi.

Sjúkdómurinn minn tekur prósentu frá mér, skortur á stuðningi frá kerfinu tekur prósentu frá mér, biðlistar í heilbrigðiskerfinu taka prósentu frá mér og svona mætti lengi telja. Til þess að ég geti átt möguleikann á að verða frambjóðandi í fullu starfi þarf ég að fá þessar prósentur til baka.Sjúkdómurinn er og verður en bótakerfið, heilbrigðiskerfið og stuðningskerfið gætu fært mér prósentur til baka í líf mitt og hjálpað mér að vera frambjóðandinn sem ég vil vera: Frambjóðandi sem getur verið til jafns við aðra frambjóðendur. Frambjóðandi sem stendur ekki höllum fæti fyrirfram. Frambjóðandi sem hefur jafn mikin möguleika og aðrir til að sinna starfi frambjóðanda og mögulega einhvern tíman starfi þingmanns.

Texti skrifaður með aðstoð liðveitanda úr sjúkrarúmi.

Höfundur skipar níunda sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×