Skoðun

Frá­bært Garða­torg – „Eins og í Garða­bæ“

Sigríður Hulda Jónsdóttir og Guðfinnur Sigurvinsson skrifa

Ímyndum okkur Garðabæ framtíðarinnar. Líf og leikur, fjölbreytt afþreying og þjónusta og falleg almannarými. Það er forgangsverkefni að ljúka Garðatorgi sem glæsilegum miðbæ sem skapar bæjarbrag og er mannlífsmiðja þar sem íbúar hittast og ganga erinda sinna.

Uppbygging nýja Garðatorgs gekk vel og gefur góða von um framhaldið. Glæsileg verslun og þjónusta er á torginu og við sjáum það á þétt skipuðum bílastæðum að viðskiptavinirnir fylgja á eftir. Eldri hluti Garðatorgs hrópar nú á endurgerð og þar eru gríðarlega spennandi möguleikar í stöðunni. Slíka endurgerð þarf að framkvæma í samvinnu við hagsmunaaðila.

Þetta þarf að gera

Það þarf að draga að snjalla hönnuði og hugmyndasmiði sem skilgreina í samráði við hagsmunaaðila og bæjarstjórn hvers konar andrúmsloft eigi að ríkja á Garðatorgi til framtíðar. Aðkoman á að vera falleg og upplifun af heimsókn í miðbæinn jákvæð. Hugmyndasamkeppni um framtíð miðbæjarins gæti verið góð leið til þess að sjá betur tækifærin sem eru möguleg. Við slíka framkvæmd er eins og ávallt rétt að horfa til leiða sem draga úr helstu umhverfisáhrifum af byggingum.

Öflugt mannlíf

Endurhugsa og efla þarf yfirbyggðu svæðin, horfa á miðbæinn í heild og tengja saman kjarnana. Grunnhönnun yfirbyggðu svæðanna skapar marga möguleika og þar eru nú glæsilegar verslanir og öflugir þjónustuaðilar. Útfærsla í samvinnu við hagsmunaaðila getur skapað aðlaðandi og lifandi svæði t.d. mathöll, fjölbreytta þjónustu smærri fyrirtækja, menningarmiðju, leik- og vinnusvæði eða afþreyingu. Yfirbyggða bókasafnstorgið gæti t.d. verið grænt svæði með suðrænum blæ, uppákomum og listsýningum. Bæjarstjórn gæti fundað á torginu og stjórnsýslan átt þar opinn samstarfsvettvang við bæjarbúa. Frá íbúum hefur komið hugmynd um gosbrunn á torginu sem vert er að skoða. Við þurfum að halda áfram að byggja torgið upp af miklum metnaði og tryggja að þar sé umhverfið í sérflokki. Þannig getum við með umgjörðinni laðað að fyrirtæki sem njóta vinsælda og fólk vill skipta við.

Breyttir tímar, breyttar þarfir

Sú var tíðin að fólk þurfti bara lóð til að byggja sér hús á og að í grennd væri nýlenduvöruverslun með helstu nauðsynjum. Nútímafólk hefur aðrar þarfir. Það vill búa í bæ þar sem það getur notið sín, fara á kaffihús og samverustaði til að eiga gæðastundir. Hafa mögleikann á því að njóta stemmningar á mismunandi árstíðum, s.s. á sumrin og fyrir jól, fara gangandi og hitta félaga. Nú eru bæði á Garðatorgi og í mismunandi hverfum bæjarins að spretta upp staðir og starfsemi sem mæta þessum kröfum. Sannkölluð hverfishjörtu. Þetta er spennandi verkefni sem verður gaman að takast á við og móta. Ef vel tekst til þá er þetta dæmi um framtak sem mun verða grunnur að bæjarbrag og ímynd bæjarins. Við þurfum að reisa þessar stoðir þannig að úr verði gott fordæmi og þegar aðrir vilja byggja miðbæ eða efla verslun og þjónustu verði sagt; „Já, svona eins og í Garðabæ.”

Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ og formaður skólanefndar. Guðfinnur Sigurvinsson, varabæjarfulltrúi í Garðabæ og í umhverfisnefnd.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×