Skoðun

Börn eiga ekki að borga

Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar

Börn hafa ekki tekjur og eiga ekki að greiða gjöld. Sveitarfélögin eiga að vera hönnuð út frá þörfum barna með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Leikskólar og grunnskólar eiga að vera gjaldfrjálsir, þar sem boðið er upp á næringarríkan mat. Líta má til Finnlands sem hefur náð góðum árangri með gjaldfrjálsum skólamáltíðum til barna en slíkt á rætur sínar að rekja til stríðsáranna. Finnland var á meðal þeirra fyrstu í heimi til að bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir og þar er bent á að slíkt gagnist öllum börnum en sé nauðsynlegt fyrir sum.

Reykjavík er ekki á réttri leið þar sem börn eru látin greiða fyrir að borða í skólanum. Skólar eru stofnanir í samfélaginu sem eiga að vera gjaldfrjálsar. Sameiginlegir sjóðir eiga að standa undir þeirri mikilvægri þjónustu sem þarf fer fram. Fjármagnseigendur þurfa að greiða til samfélagsins eins og launafólk með útsvari á fjármagnstekjur. Ekki er eðlilegt að ríkt fólk sé undanþegið því að greiða fyrir þá mikilvæga þjónustu sem leik- og grunnskólar eru.

Gjaldfrjáls þjónusta við börn nær einnig yfir öll námsgögn, skemmtanir og ferðalög skólabarna ásamt dvöl á frístundaheimili. Þá eiga börn að geta sótt gjaldfrjálsar tómstundir, íþróttir og tónlistarnám. Núverandi inneignarkerfi frístundakortsins tryggir ekki að börn geti tekið þátt í upp­byggi­legu frí­stunda­starfi óháð efna­hag eða félags­legum aðstæð­um. Byggja þarf upp íþrótta- og tómstundastarf sem hluta af félagslegum innviðum í stað þess að börnum sé rétt inneign til niðurgreiðslu á starfi sem hefur verið markaðsvætt.

Göngum burt frá markaðshugsun í skipulagningu frístundastarfs og göngum rakleiðis í átt að félagshyggju. Inneignarkerfi sem byggir á því að þú getir valið hvert þú ferð með þitt takmarkaða fjármagn tryggir ekki að öll börn geti tekið þátt í frístundastarfi óháð efnahag. Skipuleggja þarf frístundir sem öflugar félagslegar stofnanir.

Sundferðir og líkamsrækt fyrir börn og ungmenni skal vera gjaldfrjáls. Börn á aldrinum 6-17 ára eiga ekki að greiða 175 krónur í hvert sinn sem farið er í laugina. Efla skal opin rými í kringum sundlaugar borgarinnar, með áherslu á heilsurækt. World Class hefur komið sér fyrir í kringum flestar sundlaugar borgarinnar, þá líkamsræktaraðstöðu þarf að greiða fyrir. Við eigum öll að geta komið saman í rýmum borgarinnar til að leggja stund á heilsurækt óháð efnahagslegri stöðu.

Reykjavík á ekki bara að virka fyrir efnaðasta fólkið og börn þeirra sem lifa í landi tækifæranna. Breytum borginni og hættum að rukka börn fyrir þjónustu. Kjósum gjaldfrjálsa grunnþjónustu. Sósíalistar leggja til að börn og ungmenni borgi ekki fyrir þjónustu innan borgarinnar.

Þetta er tillaga Sósíalista fyrir borgarstjórnarkosningarnar 14. maí. Sósíalistar treysta á að borgarbúar kjósi bestu lausnina, þá skynsamlegustu og réttlátustu. Þess vegna leggja þeir slíkar tillögur fram.

Höfundur er oddviti Sósíalistaflokks Íslands í komandi borgarstjórnarkosningum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×