Skoðun

Raun­veru­leg gras­rót

Helga Jónsdóttir skrifar

Sjö vikum fyrir kjördag ákváðu grasrótarsamtökin Vinir Kópavogs að bjóða fram lista til bæjarstjórnarkosninganna. Eftir þessar vikur er ég óendanlega stolt af að hafa fengið að taka þátt í ævintýrinu. Einstaklingarnir sem gáfu kost á sér á lista Vina Kópavogs gerðu það án hiks, og listinn varð til á svipstundu. Á honum er ótrúlega fjölbreyttur hópur hæfileikaríkra einstaklinga með reynslu og þekkingu á öllum sviðum sveitarstjórnarmála, eldhugar með ólíkan bakgrunn. Það sameinar hópinn að við brennum fyrir framtíð Kópavogsbæjar og teljum tímabært að nýjar áherslur fái notið sín.

Það er ekki lítil bjartsýni hjá nýstofnaðri hreyfingu, sem hvorki á fjármuni né feril og hefur enga flokksmaskínu á bak við sig að bjóða fram lista til bæjarstjórnarkosninga. Það er heilmikið verkefni að setja saman málefnaskrá og áherslur, hvað þá að koma stefnumálum á framfæri. Ef engum fjármunum er til að dreifa öðrum en framlögum félaga og velunnara þarf að hugsa upp á nýtt. Hefðbundnir stjórnmálaflokkar fá bæði framlög frá sveitarfélagi og ríki, og byggja á áralangri reynslu. Þeir fylla auglýsingatíma ljósvakamiðlanna og heilsíður blaðanna til að koma málum og fólki á framfæri.

Vinir Kópavogs og vinir þeirra hafa gert allt kynningarefni sjálfir. Það er hannað og prentað af vinum og kunningjum, og frambjóðendur og fjölskyldur bera efnið í öll hús bæjarins. Við prentuðum stóra borða sem á voru háttvís mótmæli við stefnu bæjaryfirvalda. Stuðningsmenn okkar greiddu fyrir borðana og settu þá upp við heimili sín. Þetta fóru fyrir brjóstið á bæjaryfirvöldum. Valdhrokinn var slíkur að þeir tóku sér lögregluvald, fóru inn á einkalóðir og fjarlægðu borðana—án lagaheimildar. En við létum það ekki stöðva okkur. Við hringdum í fólk, við keyrðum um í pallbíl með gjallarhorn til að vekja á okkur athygli, gerðum myndbönd og birtum á síðum Vina Kópavogs og áfram má telja.

Allt er þetta gert í frítíma fólks sem hefur lagt á sig ótrúlega vinnu með einstakri gleði. Við höldum nefnilega að þeir sem fá tækifæri til að kynnast okkur vilji kjósa okkur. Við viljum íbúalýðræði, þar sem bæði fólki og viðfangsefnum er sýnd virðing, við viljum að skipulag snúist um fólk og mannlíf en ekki steinsteypu, og við viljum axla ábyrgð í umhverfis- og loftslagsmálum til að undirbúa farsæla framtíð. Við viljum ekki að græðgi einnar kynslóðar tefli framtíð þeirrar næstu í tvísýnu. Það er engin furða að ég sé þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa þetta ævintýri og kynnast afburða fólki. Ég veit að atkvæði greidd Vinum Kópavogs verða til þess að fólk sem er reynt, hæfileikaríkt og brennandi í andanum kemst til áhrifa.

Helga Jónsdóttir skipar 1. sæti á lista Vina Kópavogs.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×