Skoðun

Lokaorð um Guðríði og eldflaugina

Helgi Sæmundur Helgason skrifar

Á þjóðhátíðardaginn var þáttur á Rás 1 í umsjón Jóns Ársæls Þórðarsonar með því huggulega heiti Guðríður og geimfarið. Í þættinum fær Jón Ársæll valinkunna fræðimenn á ýmsum sviðum til að rifja upp sögu Guðríðar Þorbjarnardóttur, fjalla um hið sögulega og hugmyndalega samhengi margumtalaðrar styttu Ásmundar Sveinssonar af Guðríði (Fyrsta hvíta móðirin) og einnig um verk listakvennanna Steinunnar Gunnlaugsdóttur og Bryndísar Björnsdóttur sem þær settu upp í vor og nefndu Farangursheimild – Fyrsta hvíta móðirin í geimnum. 

Eins og alþjóð veit stálu þær Steinunn og Bryndís styttu Ásmundar af stalli sínum á Laugarbrekku á Snæfellsnesi og komu henni fyrir í eldflaug (ekki geimfari) á bílastæðinu fyrir utan Nýlistasafnið. Skilaboðin með gjörningi listakvennanna voru þau að stytta Ásmundar sé rasískt rusl sem best færi á að eyðileggja (breyta í geimrusl).

Því miður vantaði gagnrýnni umræðu um þessa ályktun listakvennanna í þætti Jóns Ársæls. Eins og ég hef áður fjallað um í greinum mínum hér á Vísi og í Fréttablaðinu þá fer því víðs fjarri að Ásmundur hafi lagt rasíska merkingu í þessa styttu (þrátt fyrir heitið). Um þetta sýnist mér allir vera sammála, meira að segja líka Steinunn og Bryndís sem héldu því fram í furðulegri yfirlýsingu nú á dögunum að verk þeirra hefði ekkert með persónur að gera! Að verk þeirra beindist aðeins að hugmyndafræðinni að baki styttu Ásmundar en hefði ekkert með persónulegan tilgang listamannsins að gera. 

Þessi yfirlýsing listakvennanna afhjúpar þversögnina í verki þeirra því hún sýnir að í reynd virða þær að einhverju leyti þá merkingu sem Ásmundur lagði í sitt eigið verk og því hlýtur styttan að eiga sér tilverurétt – hún er m.ö.o. ekkert rusl.

Þetta þýðir að sjálfsögðu ekki að heiti styttunnar kunni ekki að vera afsprengi rasískrar hugmyndafræði eins og þær Steinunn og Bryndís eru sannfærðar um og margir fræðimenn hafa tekið undir, þ.á m. Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur í þætti Jóns Ársæls. Með gleggri greiningu og minni yfirgangi hefðu listakonurnar áreiðanlega náð að koma þessari skoðun til skila án þess að vega að æru Ásmundar.

Það er líka mikilvægt að halda því til haga hér að mörgum þykir afar vænt um styttuna af Guðríði en það er vegna þess að hvað sem fræðilegri umfjöllun líður þá er styttan falleg og fólk tengir við þá merkingu sem Ásmundur ætlaði henni – að vekja athygli á sögu Guðríðar og minnast afreka hennar.

Höfundur er framhaldsskólakennari.


Tengdar fréttir

Afkomendur Ásmundar segja listakonurnar vega að æru hans

Barnabarn Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara segir listakonurnar Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur hafa vegið harkalega að æru Ásmundar þegar þær sögðu styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur rasíska.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×