Skoðun

Megum við tala íslensku hérna?

Gunnar Björn Björnsson skrifar

Núna árið 2022 er staðan í þjóðfélaginu okkar orðin stórfurðuleg. Ef við íslendingar hefðum almennt ekki þokkalegan grunn í ensku máli, þá værum við einfaldlega í vandræðum með almenn samskipti eins og að biðja um vöru og þjónustu í okkar eigin heimalandi. Auðvitað er þetta ekkert einfalt mál, þetta hefur að gera með mönnunarvanda og þannig er gefinn afsláttur á því að læra íslenskuna sem okkur þykir vonandi öllum vænt um.

Það kemur sér vel fyrir flest okkar að hafa enskukunnáttu. Enska er mjög mikilvægt mál víða í heiminum og engin ástæða til að gera lítið úr því. Hins vegar finnst mér alveg drepleiðinlegt að tala ensku á Íslandi, því mér finnst það einfaldlega vera asnalegt. Ég hélt það væri sjálfsögð mannréttindi mín að tala íslensku í mínu heimalandi.

Auðvitað þurfa útlendingar að gera ráð fyrir því að það verði töluð íslenska á þessari eyju okkar, að sjálfsögðu! Það á að ekki að vera þeirra hlutverk að stjórna því á hvaða máli við íslendingar tjáum okkur þegar við biðjum um vörur og þjónustu heima hjá okkur.

Auðvitað er þetta ekkert einfalt mál. Sumir ætla bara að koma hingað til skamms tíma til að vinna. Aðrir eiga erfitt með að læra málið okkar og þannig mætti halda áfram. En er ekki okkar íslendinga draga línurnar og setja mörk? Við gætum sagt erlenda vinnuaflinu og okkur þætti vænt um að það lærði málið okkar ekki satt? Við gætum hjálpað því betur að læra málið okkar ekki satt? Við getum sjálf kennt því íslenskuna því við tölum hana og skiljum vonandi þokklega ennþá ekki satt? Liggur svona mikið á? Er ekki hægt að hafa íslenskukennslu sem hluta af starfsþjálfun? Er hraðinn kannski það mikill að það er enginn starfsþjálfun? Spyr sá sem ekki veit.

Auðvitað verður eyjan okkar aldrei þannig að þeir sem á henni búa tali allir íslensku en þetta er orðin regla frekar en undantekning að maður þurfi að hlusta á „english please“.

Það versta við þetta er að það er nánast engin umræða um þessi mál og því mætti halda að okkur íslendingum sé nákvæmlega sama um það hvaða mál við tölum í okkar heimalandi. Höldum áfram að leyfa fólki að vinna hérna sem treystir sér til þess og vil, en við erum fólkið sem búum hérna.

Höfundur er tölfræðingur og framhaldsskólakennari.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×