Kvenkyns utanríkisráðherrar funda vegna Íran Bjarki Sigurðsson skrifar 20. október 2022 07:20 Miðillinn The Guardian segir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra Íslands, verði á fundinum. Vísir/Vilhelm Fimmtán kvenkyns utanríkisráðherrar ríkja um allan heim munu funda í dag vegna stöðu kvenna og mannréttinda í Íran. Utanríkisráðherra Íslands er sagður taka þátt í fundinum.
Það er Melanie Joly, utanríkisráðherra Kanada, sem stendur fyrir fundinum en hún segir að hún muni funda í gegnum fjarfundabúnað með fjórtán öðrum kvenkyns utanríkisráðherrum í dag. Hún segir fundinn vera tækifæri til að samhæfa aðstoð ríkja til Íran. The Guardian staðhæfir að utanríkisráðherrar Noregs, Þýskalands, Síle og Nýja-Sjálands taki þátt í fundinum. Þá telur miðillinn að utanríkisráðherrar Albaníu, Andorra, Mið-Afríkulýðveldisins, Kósóvó, Líbíu, Liechtenstein, Mongólíu, Panama og Íslands taki einnig þátt. „Ég og kollegar mínir söfnumst saman til að senda skýr skilaboð. Íranska klerkastjórnin mun þurfa að binda endi á allt ofbeldi og allar ofsóknir gegn írönsku þjóðinni, þar á meðal grimmilegar árásir þeirra gegn konum,“ hefur The Guardian eftir Joly. Mótmælaöldunni í Íran hefur ekki lægt síðustu daga. Mótmælin hófust eftir að hin 22 ára gamla Mihsa Amini lést í haldi siðgæðislögreglunnar þar í landi. Hún hafði verið handtekin fyrir að notast ekki við slæðu á almannafæri.
Íran Utanríkismál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Kanada Jafnréttismál Mótmælaalda í Íran Mest lesið Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Telur fækkun ráðuneyta óheppilega Innlent Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Innlent Gestur fari með rangt mál varðandi endurtalningu Innlent Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Innlent Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Erlent Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi Innlent Funda áfram á morgun Innlent Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Innlent Combs kærður fyrir að hafa látið konu hanga fram af svölum Erlent Fleiri fréttir Launmorð á götum New York Combs kærður fyrir að hafa látið konu hanga fram af svölum Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Herlögin loks felld úr gildi Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Óvissa þrátt fyrir að þingið hafi fellt neyðarlögin úr gildi Lýsir yfir herlögum í Suður-Kóreu Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Rannsaka ekki ljósleiðaraskemmdir sem sakamál ennþá Stefnir í vantraust og aðra stjórnarkreppu Skorið á ljósleiðara í Finnlandi Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Sjá meira