Skoðun

Heimilt að fá haus­verk um helgar

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar

Ég hef lagt fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lyfjalögum, sem afnemur skilyrði laganna um að sala lausasölulyfja í almennum verslunum sé háð fjarlægð frá apóteki. Með öðrum orðum að heimila sölu lausasölulyfja í öllum almennum verslunum.

Með því að víkka út undanþáguheimild til að selja tiltekin lausasölulyf í almennum verslunum væri með tiltölulega einföldum hætti hægt að koma betur til móts við þarfir neytenda, auka aðgengi, auka samkeppni og lækka verð á tilteknum lausasölulyfjum sem Lyfjastofnun hefur þegar heimilað tilteknum almennum verslunum að selja. Ekki mun breytingin slá af neinar kröfur um öryggi lyfja.

Þetta litla skref myndi færa fyrirkomulag lyfsölu einu skrefi nær því sem gengur og gerist á Norðurlöndunum. Sala lausasölulyfja er að meginstefnu heimiluð í almennum verslunum á hinum Norðurlöndunum. Í skýrslu norrænu samkeppniseftirlitanna um netverslun lyfja og sölu lyfja í lausasölu utan apóteka á Norðurlöndunum er tekið undir það sjónarmið að með aukinni samkeppni í sölu á lausasölulyfjum megi halda því fram að þjónusta við almenning batni og verð á lausasölulyfjum lækki.

Stórbætt heilbrigðisþjónusta

Heilbrigðisþjónustan hefur verið í brennidepli undanfarin misseri og yrði þessi breyting liður í því að efla heilbrigðisþjónustu um landið allt. Að fólk eigi þann kost á að fá hita- eða verkjastillandi lyf um helgar jafnt sem virka daga, jafnvel allan sólarhringinn. Að barnafólk þurfi ekki að vita nákvæmlega hvenær þörf er á að eiga birgðir af stílum, því veikindi barna gera sjaldnast boð á undan sér.

Breytingin er í fullkomnu samræmi við markmið lyfjalaga um nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með öryggi sjúklinga að leiðarljósi og með sem hagkvæmastri dreifingu lyfja á grundvelli eðlilegrar samkeppni

En hvernig er þetta í framkvæmd?

Skýr umgjörð er utan um lyfseðilsskyld lyf sem eðli málsins samkvæmt krefjast þess. Þá þurfa einstaklingar sérstaka heimild læknis til að fá að kaupa þau. Á markaði eru svo einnig lyf sem ekki eru ávísunarskyld og eru opin öllum til kaupa. En samt sem áður hefur mjög þröngur rammi verið þeim settur í íslenskri löggjöf og þar til upphaf síðasta árs máttu aðeins apótek eða útibú þeirra selja lausasölulyf.

Nú eru 13 almennar verslanir með heimild til sölu á tilteknum lausasölulyfjum dreift um landið allt. Það eina sem gerir þessar verslanir frábrugðnar öðrum almennum verslunum er hversu langt er í næsta apótek eða lyfjaútibú. Lyfjastofnun hefur skilgreint 20 kílómetra viðmið um fjarlægð frá næsta apóteki. Það er mikilvægt að halda því til haga að aðrar verslanir sem eru innan fjarlægðarmarka frá apótekum hljóta að vera ekki síður færar um að tryggja rétta meðferð, gæði og öryggi lyfja. Rökin fyrir því að veita aðeins almennum verslunum undanþágu sem uppfylla þetta 20 kílómetra skilyrði frá apóteki halda illa vatni.

Ég er bjartsýn um að þessi eðlilega breyting nái fram að ganga. Þetta er í senn aðgerð til að tryggja jafnræði milli verslana og stórt mál til hagsbóta fyrir neytendur víðsvegar um landið.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×