Skoðun

Vaxandi verð­mæti grænnar auð­lindar

Valur Ægisson og Halldór Kári Sigurðarson skrifa

Sala á upprunaábyrgðum endurnýjanlegu raforkunnar okkar skilar Landsvirkjun tveimur milljörðum króna á árinu sem er að líða, tvöfalt hærri upphæð en á síðasta ári. Kerfi upprunaábyrgða er loks farið að virka eins og til var ætlast, tryggja þeim sem vinna endurnýjanlega orku hærra verð en ella og styðja þannig við orkuskipti hér og á meginlandi Evrópu. Verð upprunaábyrgða hefur hækkað mikið. Haldist það í þeim hæðum gæti árlegt verðmæti ábyrgða sem Landsvirkjun selur numið um 15 milljörðum kr. Verðmætið fyrir öll orkufyrirtæki landsins gæti orðið um 20 milljarðar kr. á ári.

Þar sem Ísland á aðild að EES-samningum er skylt að gefa raforkusölum hér á landi kost á að fá útgefnar upprunaábyrgðir og taka þátt í viðskiptum með þær, samkvæmt því evrópska kerfi sem komið var á fyrir 14 árum og 28 lönd eiga nú aðild að. Upprunaábyrgð er staðfesting á því að raforka hafi verið framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum. Upprunaábyrgðir eru sjálfstæð söluvara, óháð afhendingu á raforkunni sjálfri. Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar geta með kaupum á upprunaábyrgðum vottað raforkukaup sín og stutt endurnýjanlega orkuframleiðslu.

Orkan er jafn hrein

Kaupendur ábyrgðanna af Landsvirkjun eru að mestu almennir notendur á Íslandi og í Evrópu sem vilja styðja við uppbyggingu endurnýjanlegra orkukosta. Þær raddir heyrast stundum, að með sölu á upprunaábyrgðum til erlendra aðila sé verið að stofna orðspori okkar í hættu, því orkan okkar sé þá ekki lengur skráð 100% endurnýjanleg. Þetta er fjarri lagi. Orkan okkar er jafn hrein sem fyrr. Kerfi upprunaábyrgða er fyrst og fremst bókhaldskerfi. Þeir notendur sem eiga ekki kost á að nota endurnýjanlega orkugjafa greiða sérstaklega til þeirra sem vinna slíka orku. Landsvirkjun – ásamt öðrum orkufyrirtækjum sem vinna endurnýjanlega orku – er því sérstaklega umbunað umfram aðra. Þessi fyrirtæki fá hærra verð en aðrir fyrir orkuna. Hærra verð þýðir hreinan viðbótarhagnað.

Á undanförnum árum hefur Landsvirkjun greitt sífellt hærri arð til eiganda síns, íslensku þjóðarinnar. Þjóðin hefur sett sér markmið um orkuskipti, til að berjast gegn loftslagsvánni. Auknar tekjur Landsvirkjunar greiða fyrir frekari uppbyggingu orkuvinnslu. Það blasir við að milljarðar króna í auknar tekjur, á sama tíma og ráðist er í uppbyggingu Hvammsvirkjunar, stækkun eldri virkjana og undirbúning vindlunda, styrkir orkufyrirtæki þjóðarinnar mjög.

Verðmæti fimmtugfaldast

Verðmæti upprunaábyrgða hafa fimmtugfaldast frá því að kerfinu var komið á fyrir 14 árum. Neytendur gera sífellt auknar kröfur um græna orku. Sá þrýstingur eykur kaup á upprunaábyrgðum og kaupverðið rennur beint til orkufyrirtækja sem framleiða orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Auknar tekjur hvetja þau fyrirtæki til dáða, um leið og þær hvetja önnur fyrirtæki til að taka upp grænni hætti.

Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka afrakstur af þeim auðlindum sem þjóðin hefur trúað henni fyrir. Þess vegna seljum við upprunaábyrgðir, líkt og önnur evrópsk fyrirtæki sem vinna græna orku. Niðurstaðan er grænni heimur fyrir okkur öll.

Valur er forstöðumaður á sviði sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun og Halldór Kári er viðskiptastjóri á sama sviði.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×