Matur

Humarsúpa Bryggjunnar á lista Condé Nast yfir bestu máltíðirnar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Veitingahús í Grindavík komst á listann yfir bestu máltíðir ritstjóra ferðahluta Condé Nast.
Veitingahús í Grindavík komst á listann yfir bestu máltíðir ritstjóra ferðahluta Condé Nast. Vísir/Vilhelm

Bryggjan Grindavík er á nýjum lista sem birtur hefur verið á síðu Condé Nast Traveler. Ritstjórar síðunnar tóku saman bestu máltíðirnar sem þau höfðu fengið á árinu og humarsúpan frá Bryggjunni komst þar á lista. 

Í ummælum um staðinn skrifar einn ritstjóranna: 

„Ljúffengasta humarsúpa sem ég hef nokkurn tíman fengið“

Er þar talað um að gestir geti meira að segja fengið sér áfyllingu á súpuna sér að kostnaðarlausu. 

Bryggjan er með 4,5 stjörnur af fimm mögulegum á Tripadvisor og 1.181 notandi hefur þar gefið veitingastaðnum umsögn. Bryggjan er krúttlegur staður staðsettur á bryggjunni í Grindavík. 

Umsögn Condé Nast má lesa í heild sinni á Traveler vefnum þeirra en þar er einnig talað um staði í New York, á Grikklandi og víðar.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.