Skoðun

Norska skatta­flótta­fólkið og fyrir­heitna landið Ís­land

Jón Kaldal skrifar

Ísland er nú orðið fyrirheitna landið í augum ríkasta fólks Noregs sem hefur á undanförnum mánuðum flúið land í stórum stíl. Eða réttara sagt fyrirtækjarekstur á Íslandi er það sem heillar því þetta fólk ætlar ekki að borga skatt hér, frekar en í heimalandi sínu

Færði hlutinn á nafn 17 ára dóttur

Hvers vegna? Af hverju horfir þetta norska skattaflóttafólk svona vongóðum augum hingað og telur sig nauðbeygt til að flýja Noreg?

Svarið er einfalt. Síðastliðið haust ákváðu norsk stjórnvöld að leggja auðlindaskatt á fyrirtæki sem stunda sjókvíaeldi í fjörðum landsins. Starfsemin fer fram á hafsvæðum í eigu norsku þjóðarinnar og eftirspurnin eftir þeim er langt umfram framboðið. Þetta eru semsagt takmörkuð gæði sem sjókvíaeldisfyrirtækin hafa hingað til ekki greitt fyrir að hafa til afnota. Nú er það breytt. Sjókvíaeldiseigendurnir bera sig aumlega og eru hver á fætur öðrum að forða sér frá Noregi. Eða að minnsta kosti að nafninu til. Þeir vilja taka út persónulegan hagnað sinn þar sem skattar eru lægri.

Þannig hefur stjórnarformaður Måsøval, hins norska móðurfélags sjókvíaeldisfyrirtækjanna Laxa og Fiskeldis Austfjarða (Ice Fish Farm), fært nánast allan eignarhlut sinn í fyrirtækinu á nafn sautján ára dóttur sinnar, sem flutti heimilisfang sitt til Sviss síðastliðið haust. Hinn aðaleigandi Måsøval, bróðir stjórnarformannsins, hefur líka fært heimilisfang sitt til Sviss.

Aðaleigandi norska fiskeldisrisans Mowi, sem festi kaup á meirihluta hlutafjár í vestfirska fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish nú í desember, var hins vegar fluttur til skattaparadísareyjunnar Kýpur fyrir alllöngu. Honum hugnaðist ekki heldur að leggja sitt af mörkum til viðhalds norræna velferðarmódelsins.

Af Mowi er það helst að frétta að í vikunni sögðu norskir fjölmiðlar frá því að fyrirtækið hafi skilað á síðasta ári já­kvæðri rekstr­arniður­stöðu sem nemur um einum millj­arði evra eða jafn­v­irði um 155 millj­arða króna. Fyrirtækið rekur sjókvíaeldi við Chile og Skotland auk Noregs og hefur alls staðar skilið eftir sig slóð eyðileggingar og dauða í lífríkinu.

Einbeittur ásetningur

Ásetningur eigenda sjókvíaeldisfyrirtækjanna til skattasniðgöngu, hvort sem er hér á Íslandi eða í Noregi, er þannig einbeittur og þeir hika ekki við að nota til þess öll tiltæk ráð. Á það bæði við um persónulegar skattgreiðslur og skatta fyrirtækja í þeirra eigu.

Elsta sjókvíaeldisfyrirtækið sem hér starfar, Arnarlax, hefur til dæmis aldrei greitt tekjuskatt á Íslandi. Þó er fyrirtækið með viðskiptasögu frá 2007 þegar Fjarðalax, sem Arnarlax tók yfir, er talið með.

Sama gildir um hin sjókvíaeldisfyrirtækin á Íslandi. Þau eru rekin stanslaust með bókhaldslegu tapi og hafa því aldrei greitt hér tekjuskatt.

Rekstrarfyrirkomulagið er vel þekkt úr heimi alþjóðlegra viðskipta. Móðurfélögin og eigendur þeirra koma sér fyrir í löndum þar sem minnst þarf að greiða af sköttum og eiga svo í viðskiptum við dótturfélög sín. Háar upphæðir í erlendum gjaldeyri renna þannig úr landi fyrir ýmis aðföng, búnað, ráðgjöf og afborganir af lánum til móðurfélaganna og erlendra birgja.

Söluvaran og íslenskt skattaumhverfi

Undanfarin ár hafa norsk stjórnvöld boðið upp framleiðsluleyfi fyrir sjókvíaeldi og hafa uppboðin skilað ríkissjóði landsins háum fjárhæðum. Íslensk stjórnvöld hafa aftur á móti úthlutað þessum framleiðsluleyfum endurgjaldslaust. Ef Ísland hefði farið sömu leið og Norðmenn hefðu leyfin kostað með uppboði og norska verðinu um 170 milljarða íslenskra króna.

Skattaumhverfið hefur verið sjókvíaeldi við Ísland afar hagkvæmt. Árið 2020 stóð til dæmis fiskeldisgjaldið ekki undir kostnaði hins opinbera af þessari starfsemi.

Um miðjan nýliðinn desember ákvað svo meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar Alþingis að fresta löngu boðaðri hækkun á gjald­töku á sjó­kvíaeldi eftir þrýsting frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Með því koma sjókvíaeldisfyrirtækin sér hjá því að greiða 450 milljón krónur á þessu ári. Ein af ástæðunum sem nefnd var til sögunnar af hálfu SFS var að „um væri að ræða atvinn­u­­grein á við­­kvæmu stigi upp­­­bygg­ing­­ar.“

Staðan er þó ekki viðkvæmari en svo að á sama tíma og þessi iðnaður þykist ekki vera aflögufær ganga eignarhlutir í íslenskum sjókvíaeldisfyrirtækjum kaupum og sölum fyrir tugi milljarða.

Verðið sem Mowi greiddi í desember fyrir rúmlega helmings hlut í Arctic Fish var sem dæmi 27 milljarðar króna. Þeir milljarðar runnu til þeirra sem sóttu sér framleiðsluleyfin og aðganginn fyrir brot af þeirri upphæð og hafa aldrei viljað greiða hér fyrir afnotin af náttúruauðlindunum.

Söluvaran var framleiðslukvóti á eldislaxi og aðgangur að hafsvæðum í eigu þjóðarinnar.

Engin góðgerðarstarfsemi

Íslenskt hagsmunagæslufólk sjókvíaeldisfyrirtækjanna lætur gjarnan eins og tilgangur þeirra snúist fyrst og fremst um atvinnusköpun í brothættum sjávarbyggðum. Mátum nú saman orð og athafnir:

  • Sjókvíaeldisfyrirtæki borga ekki tekjuskatt hér.
  • Þau hafa barist hart gegn hækkun á hóflegri gjaldtöku og orðið þar ágengt, þvert á markmið laga um gjald vegna fisk­eldis í sjó og fisk­eld­is­­­sjóðs, sem voru staðfest sumarið 2019.
  • Arnarlax hefur staðið í málaferlum við Vesturbyggð vegna þess að fyrirtækið sættir sig ekki við að greiða hafnargjöld eftir verðskrá sveitarfélagsins.
  • Allir þjónustubátar sem starfa við þennan iðnað, utan einn, eru skráðir í öðrum löndum og eru með erlendar áhafnir.
  • Meirihluti starfsfólks kemur að utan og er á lágmarkslaunum.

Sjókvíaeldi krefst ekki margra starfa. Þetta er hins vegar fjárfrek starfsemi. Miklir peningar eru í vinnu. Afraksturinn (arðurinn) rennur til eigenda fjármagnsins, sem eru að langmestu leyti norsk fyrirtæki. Með öðrum orðum, úr landi.

Það eina sem við vitum fyrir víst að þessi starfsemi skilur eftir sig á Íslandi er látlaus mengunin sem streymir úr opnu sjókvíunum í hafið og skaðinn sem hún hefur á lífríkið.

Höfundur er félagi í Íslenska náttúruverndarsjóðnum - The Icelandic Wildlife Fund.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×