Skoðun

Gæslan: Hugsum okkur tvisvar um

Ari Trausti Guðmundsson skrifar

Góð voru tíðindin þegar tókst að koma í veg fyrir sölu á TF-SIF. Vonir stóðu þá til að vélin gæti gegnt sínu hlutverki hér á landi. Hún er þó aftur komin í útleigu svo halda megi í hana þar eð ekki fæst veruleg hækkun á framlögun til Gæslunnar. Stofnunin er vanfjármögnuð hvað sem annað er sagt. Auðvitað er spurning opin um hvernig 387 þúsund manna samfélag hegðar lögggæslu, hjálparstarfi, öryggismálum og náttúruvárverkefnum þegar náttúruvá herðist vegna hlýnunar og norðurslóðir opnast hennar vegna - og á meðan stríð og herðnaðaruppbygging ógna friði. Nú eru aftur uppi hugmyndir um að selja TF-SIF og kaupa ca. 9-manna, nýja Beechcraft-flugvél – m.a. af því að nágrannaþjóðir nota slíkar vélar til eftirlitsstarfa. Ríkin ráða hins vegar samtímis yfir fullbúnum herjum og alls konar öðrum loftförum til gæslu- og eftirlitsstarfa sem Landhelgisgæslan verður líka að sinna. Ég tel að þarna sé ranghugmynd uppi. Allur nauðsynlegur búnaður og margþætt starfsemi, sem krefst manngengrar flugvélar, flókins tæknibúnaðar og nærga sæta undir sérfræðinga, er fyrirferðarmeiri en svo að lítil tvíhreyfla, þótt hrað- og háfleyg sé, geti hentað.

Sú hugmynd að selja nokkuð gamla Beechcraft vél ISAVIA og sameina mörg hlutverk nýrrar flugvélar er ekki alröng en þá verður að hyggja að því að til viðbótar Gæsluhlutverkum verður hún að sinna flugvallar- og loftferðaverkefnum ISAVIA með tilheyrandi tækjabúnaði. Gleymum heldur ekki að TF-SIF er notuð til mannflutninga m.a. til leitar- eða björgunarstarfa og hún flytur rannsóknarteymi og hvers kyns fjölmiðlamenn, þegar náttúruvá dynur yfir. Jafnvel opinbera gesti eins og gæsluþyrlur gera á stundum. Fer stundum í ískönnunarflug þrátt fyrir gervihnattamyndir. Lausn gæti verið sala TF-SIF og ISAVIA-vélanna og kaup á stórri tvíhreyfla skrúfuþotu með endurnýjuðum búnaði sem hentar Gæslunni, ISAVIA og ráðuneytum er fara með málefni náttúruvár, Almannavarna og Þjóðaröryggisráðs. Hlustum á þá sem vinna þessi grunnstörf í samfélaginu, virðum stefnumótun í brýnum málaflokkum, m.a. náttúruvá, og aukum framlög til opinbers flugrekstrar sem samfélagið þarf og þolir.

Höfundur er jarðvísindamaður og fyrrum þingmaður VG.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×