Skoðun

Siðleysi að sumri til

Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Ég sit hér úti í garði það sér mig ekki nokkur. Sólin leikur um mig og jörðin skelfur!

Það er loksins komið sumar sem við öll höfuð þráð lengi sérstaklega sunnan heiða. En vegna sorglegra siðlausra mála undanfarna daga er ég ekki að njóta sólarinnar. Hvernig má það vera að hægt sé að selja eign á uppboði fyrir 3 milljónir sem var keypt á 40 milljónir og er nú metin á tæpar 60? Hvernig má það vera að einstaklingur sem virðist ekki hafa skilið hvernig íslenskt regluverk virkar og à greinilega um sárt að binda fær ekki leiðsögn og aðstoð við hæfi. Hvernig má það vera að íslenskur útgerðarmaður suður með sjó sér ekki siðleysið í gjörningnum? Siðlaust en líklega löglegt og það má!

Nú 15 árum eftir hrun finnum við kalt vatn renna milli skinns og hörunds þegar Íslandsbankamálið er skoðað. Þeir sem báru ábyrgð hafa að vísu tekið pokann sinn en ekki tómhentir. Hvernig má það vera að stofnun sem þarf að greiða himinháa sekt vegna eigin mistaka getur greitt fólki tugi milljóna fyrir að ganga út og axla enga ábyrgð ? Í dag þarf að greiða fyrir hvert viðvik sem þessi stofnun framkvæmir, jafnvel símtal kostar og rukkað er fyrir yfirlit í heimabanka sem ekki er beðið um. Svo skipta reikningar um nöfn reglulega og ávöxtun innlánsreikninga breytist stöðugt þannig að venjulegu fólki er gert erfitt um vik að reyna að fá sem skásta ávöxtun á sitt sparifé. Í bankahruninu var það almenningur sem tapaði og þurfti að borga brúsann. Þeir sem stýrðu bönkum og þessir sem báru svo mikla ábyrgð að laun þeirra voru margföld á við okkur hin sem vinnum líka ábyrgðarmikil störf jafnvel þar sem mannslíf eru í húfi en ekki peningar. En hver var í raun þeirra ábyrgð og kunnu þeir að axla hana?

Nú að lokum þegar jörðin skelfur sem aldrei fyrr og við bíðum eftir eldgosi þá skelfur hið háa Alþingi vegna skýrslu um Lindarhvolsmálið sem er ekki lengur leyndó en fullkomnar siðleysið þetta sumar. Hvernig má það vera að við höfum ekkert lært og spilling og siðleysi fái ennþá að líðast ?

Ég reyni að kenna börnum mínum að gera gott og leggja sig fram um að verða góðir þjóðfélagsþegnar. En þegar ég þarf að útskýra ofangreind mál verð ég orðlaus og það gerist sjaldan. Bið þess að okkur gefist gæfa til að kenna komandi kynslóðum að breyta betur og hlúa að okkar minnstu bræðrum þó þeir hafi kannski ekki fæðst hérlendis en kjósa að búa hér. Kennum þeim líka að taka ekki fé sem aðrir eiga og fremja siðlaus brot að sumri til.

Njótið sólar og sumars.

Höfundur er læknir.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×