Skoðun

Vindorka í ó­snortinni náttúru eða í byggð?

Haraldur Þór Jónsson skrifar

Orkuskiptin eru fram undan og nokkuð ljóst er að vindorkuver munu rísa á Íslandi áður en langt um líður. Hingað til höfum við beislað vatnsaflið og jarðvarmann sem eru staðbundnir virkjanakostir. Þar beislum við orkuna þar sem hún er í iðrum jarðar eða rennur frá hálendinu út í sjó. Hvað vindorkuna varðar er staðan allt önnur. Í fyrsta sinn höfum við tækifæri á að taka ákvarðanir um hvar við getum beislað orkuna sem felst í vindinum. Við höfum tækifæri á að ákveða hvar vindorkuver verða byggð í sem mestri sátt við íbúa, umhverfið og náttúru.

Að mati undirritaðs hefur raunveruleg umræða um vindorku ekki átt sér stað að neinu ráði á Íslandi. Viljum við fara með vindorkuverin upp á hálendi Íslands. Viljum við setja vindorkuverin þar sem þau eru ekki fyrir framan augun á okkur í daglegu lífi okkar, en raska sannarlega þeim verðmætum sem felast í ósnortnu víðerni hálendisins. Eru vindmyllur svo hræðilegar að við, íbúar landsins, megum bara alls ekki sjá þær? Það er alveg ljóst að minnstu umhverfisáhrif af vindorkuveri er í byggð, nálægt þeim stað sem orkan er notuð.

Samt er staðan sú að fyrsta vindorkuverið, Búrfellslundur, á að byggja á hálendi Íslands. Búrfellslundur skilaði verstu mögulegu útkomu í vinnu rammaáætlunar er kemur að ferðaþjónustu og útivist. Samt ákvað alþingi að setja Búrfellslund í nýtingarflokk í rammaáætlun í júní 2022. Í mati á umhverfisáhrifum á Búrfellslundi er fullyrt að uppbygging og rekstur vindmylla komi til með að hafa jákvæð áhrif á sveitarfélög á svæðinu þar sem atvinnutækifæri skapast og tekjur aukast. Slíkt er röng fullyrðing. Rekstur vindorkuvera skapar ekki staðbundin störf á rekstrartíma vindorkuvera. Búrfellslundur er slíkt inngrip í hálendi Íslands að hann mun valda gríðarlegu tjóni á möguleikum til atvinnuuppbyggingar í ferðaþjónustu og útivist. Samt ákvað alþingi að setja Búrfellslund í nýtingarflokk í rammaáætlun.

Nokkuð ljóst er að verði Búrfellslundur byggður, þá erum við að fórna miklu stærri hagsmunum fyrir orkuframleiðslu sem auðveldlega er hægt að staðsetja annarsstaðar á landinu í miklu meiri sátt við nærumhverfið.

Skilyrði fyrir vindorkuver á Íslandi eru frábær, svo frábær að það er erfiðara að finna stað sem hentar ekki fyrir vindorkuver heldur en að finna góð vindskilyrði fyrir vindorkugarð. Á meðfylgjandi mynd er það dökki liturinn sem sýnir bestu vindskilyrðin fyrir vindorkuframleiðslu Íslandi. Þessi frábæru skilyrði eru einmitt ástæðan fyrir því að við getum, í fyrsta skipti, farið í skýrt staðarval á orkuframleiðslu. Beislað orkuna í vindinum án þess að fórna ósnortinni náttúru né í andstöðu við íbúana sem verða í nærumhverfinu.

Uppbygging vindorkuvera verður að vera á forsendum nærsamfélagsins og í sátt við umhverfið. Hefjum umræðuna um hvar vindorkuver eigi að vera staðsett á Íslandi af alvöru!

Höfundur er sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpsverjahrepps. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×