Skoðun

Vinstri­menn banna vinstri beygju í Vestur­bænum

Marta Guðjónsdóttir skrifar

Í fréttum að undanförnu hafa Seltirningar lýst yfir áhyggjum sínum af fyrirhuguðum, róttækum breytingum á gatnamótum Hringbrautar og Eiðisgranda, við JL-húsið. Þar er um er að ræða eina helstu samgönguæðina inn og út úr sveitarfélagi þeirra.

En þeir eru ekki einir um þessar áhyggjur. Vaxandi fjöldi Vesturbæinga hefur einnig áhyggjur af þessum fyrirhuguðu umferðarþrengingum og ekki að ástæðulausu. Þær áhyggjur verða borgaryfirvöld að taka með í reikninginn.

Á þessum slóðum hefur Vesturbæingum fjölgað ört á undanförnum árum og þeim heldur áfram að fjölga. Nú er í uppbyggingu, eða í þann mund að hefjast uppbygging á fjölda íbúða á Héðinsreitnum, Byko-reitnum, á Landhelgisgæslu-reitnum, KR-reitnum og í Vesturbugtinni við Mýrargötu.

Fjölgun íbúa – meiri umferð

Þessi byggðaþétting og fjölgun íbúa á auðvitað eftir að fjölga enn vegfarendum á þessum slóðum og draga enn frekar úr umferðarflæði þar. Grandinn er nú orðið eitt helsta verslunar- og þjónustusvæðið í vestasta hluta borgarinnar og Vesturbæingar og Seltirningar eru óþyrmilega minntir á það, á degi hverjum, að umferð um Hringbrautina er löngu sprungin á álagstímum.

Fyrirhuguð fækkun akreina

Borgaryfirvöldum er vel ljós þessi þróun. En í stað þess að gera ráðstafanir til að greiða fyrir umferð um gatnamót Hringbrautar, Eiðisgranda og Ánanausta, og auka þar umferðaröryggi, velja þau sína klassísku leið: að þrengja að umferð og skapa umferðaröngþveiti á álagstímum.

Þessar fyrirætlanir má lesa um í bókun þeirra frá 8. mars sl. Þar segir: „Við samþykkjum til bráðabirgða tillögu um bætta ljósastýringu og gönguþverun við gatnamót Hringbrautar og Ánanausta. En betur má ef duga skal. Íbúðum fjölgar mikið á svæðinu næstu misseri. Hringtorgið og næsta nágrenni þess er afleitt og beinlínis hættulegt fyrir fótgangandi vegfarendur. Umferðin á þessum stað er of hröð og hættuleg. Æskileg væri að fækka akreinum með fram ströndinni og breyta hringtorginu í klassísk ljósastýrð T-gatnamót.“

Umferðarteppur draga úr umferðaröryggi

Í stað þess að koma með raunhæfar lausnir í þeirri viðleitni að greiða fyrir umferð og auka umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, hyggjast borgaryfirvöld þrengja enn frekar að umferð á þessu svæði með hugmyndum um að afleggja hringtorgið og koma fyrir T-gatnamótum við JL- húsið.

Slíkri breytingu er ætlað að útiloka vinstri beygju frá nyrsta hluta Hringbrautar og vestur á Nes. Auk þess stendur vilji meirihlutans til að bæta gráu ofan á svart með því að fækka akreinum. Það er því fyrirhugað að skapa fullkomið umferðaröngþveiti á þessum slóðum. Staðsetning ljósastýrðu gönguþverunarinnar, sem fyrirhugað er að koma upp við JL-húsið, hefur auk þess mætt mikilli gagnrýni.

Umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda verður ekki bætt með umferðarteppum. Þvert á móti draga þær úr umferðaröryggi allra ferðamáta, einkum þeirra sem ganga og hjóla.

Myndin sýnir göngu- og hjólabrú á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu.

Göngubrú í stað ljósastýrðrar gangbrautar

Raunhæf viðleitni til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda við þessi gatnamót fælist hins vegar í því að koma fyrir göngu- og hjólabrú á svæðinu, rétt eins og gert var við gatnamót Njarðargötu og Hringbrautar. Ég mun því leggja fram tillögu á vettvangi borgarstjórnar að farið verði í slíkar framkvæmdir hið fyrsta.

Fyrirhugaðar umferðarþrengingar borgaryfirvalda á þessum slóðum munu hins vegar einungis gera slæmt ástand óviðunandi og eru ekki boðlegar Vesturbæingum, né íbúum Seltjarnarness.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×