Skoðun

Hefurðu komið í „Yoda Cave“ og á „Diamond Beach“?

Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar

Ferðaþjónustan hefur setið undir nokkurri gagnrýni undanfarið vegna meintra neikvæðra áhrifa á íslenska tungu og ofnotkun ensku í starfsemi sinni. Þeirri gagnrýni hefur verið svarað af minni hálfu og fleiri meðal annars í grein hér á Visir.is, sem heitir „Er ferðaþjónustan að rústa íslenskunni“.

Annar angi þessa máls og sá sem ég tek hjartanlega undir að þurfi að stíga inn af krafti, er sú aukna tilhneiging að þýða íslensk örnefni yfir á ensku. Það eru ekki mjög mörg ár síðan það fór að bera á þessu og í raun veit enginn nákvæmlega hvernig þetta gerðist og hver eða hverjir áttu frumkvæðið að þessu. Þó þykir líklegt, af þeim sem best til þekkja, að þessar þýðingar hafi orðið til hjá áhrifavöldum á samfélagsmiðlum, í upplýsingamiðlun á milli erlendra ferðamanna sjálfra, hjá kvikmyndagerðarfólki og hugsanlega hjá erlendum ferðaskipuleggjendum, sem starfa á Íslandi.

Þeir sem vinna við markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað hafa í gegnum árin notað íslensk örnefni og ekki gert tilraun til að gera þau þjálli í munni erlendra gesta. Nú upp á síðkastið hefur hins vegar í auknum mæli mátt sjá þessi þýddu örnefni í markaðsefni fyrirtækja.

Hér má sjá nokkur dæmi:

·„Batman Mountain“ - Vestrahorn (Brunnhorn)

·„Yoda Cave“ - Gígjagjá

·„Black beach“ - Reynisfjara

·„Valley of tears“ - Sigöldugljúfur

·„Diamond beach“ - Fellsfjara (Eystri Fellsfjara)

·„Rhino Rock“ - Hvítserkur

·„Arrowhead Mountain“ - Kirkjufell

·„Whispering Cliffs“ - Hljóðaklettar

Mér finnst þessi þróun mjög óheillavænleg og ekki til þess fallin að auka hróður Íslands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Hún stuðlar ekki heldur að því að ferðaþjónustan starfi í sátt við landið og þjóðina. Hvernig má það til dæmis vera að jafnvel fólk sem starfar í ferðaþjónustu hafi ekki hugmynd um, um hvaða staði er verið að tala, þegar ensku heitin eru notuð?

Lausleg könnun meðal fagmenntaðra leiðsögumanna á Íslandi leiddi í ljós að flestir þeirra nota ávallt íslensku örnefnin í sinni leiðsögn og mörgum þeirra finnst þessi þróun í besta falli kjánaleg. Aðrir fá aulahroll. Tökum mark á þeim – leiðsögumenn eru þeir sem komast í nánustu snertinguna við gesti okkar.

Ferðamenn sem koma til landsins koma til að upplifa náttúrufegurð og íslenska menningu á sama tíma. Stór hluti menningarinnar er þjóðtungan, sem ferðamenn vilja einnig komast í snertingu við. Algjörlega óháð því hvort þeir skilja eitt einasta orð eða ekki. Tungan er hluti af upplifuninni og því eigum við ekki að niðursjóða hana í enska markaðsfrasa. Leyfum ferðamönnunum okkar að kljást við hana og bæta þar með kryddi í upplifun af landinu og þjóðinni. Ég skora því hér með á alla þá sem starfa í ferðaþjónustu, sem og almenning, að taka ekki þátt í þessari enskuvæðingu á náttúrunni okkar, heldur nota fallegu, kjarnyrtu, íslensku örnefnin.

Á afmælisráðstefnu SAF þann 15. nóvember nk. verður meðal margra annarra málstofa um ferðaþjónustu og íslensku, þar sem kafað verður dýpra ofan í málið.

Höfundur er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×