Skoðun

Heggur sá er hlífa skyldi

Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Hinn 8. nóvember birtist á vef Stjórnarráðsins tilkynning frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu undir fyrirsögninni „Vinnum gullið – TEAM-Iceland til árangurs“. Í tilkynningunni segir: „TEAM-Iceland er framtíðarsýn starfshóps mennta- og barnamálaráðherra um íþrótta- og afreksmiðstöð.“ Framtíðarsýn ráðuneytisins er sem sé á ensku. Á fleiri stöðum í tilkynningunni er svo talað um „TEAM-Iceland verkefnið“. Það ætti ekki að þurfa að benda á að „TEAM-Iceland“ er ekki íslenska heldur enska. Það er ótrúlegt og óskiljanlegt að Mennta- og barnamálaráðuneytið af öllum aðilum skuli gefa verkefni sem það stendur fyrir enskt heiti – verkefni sem er ekki síst ætlað að höfða til barna og unglinga á „öllum stigum skólakerfisins“.

Fyrir réttu ári var tilkynnt um stofnun ráðherranefndar um íslenska tungu sem mennta- og barnamálaráðherra situr í ásamt fjórum öðrum ráðherrum. Í fréttatilkynningu sem gefin var út af þessu tilefni var vísað í stjórnarsáttmála þar sem er „lögð sérstök áhersla á að börn og unglingar nýti tungumálið“. Heiti eins og „TEAM-Iceland“ vinnur einmitt gegn því með því að ýta undir þá hugsun sem virðist útbreidd að meira mark sé takandi á því sem hefur enskt heiti – að íslenskan sé of hallærisleg og heimóttarleg til að nota hana í heiti á eitthvað sem á að skipta máli. Einstök ensk heiti, skilti og auglýsingar verða vitanlega ekki til þess að drepa íslenskuna. En þau hafa táknrænt gildi og eru vísbending um afstöðuna til tungumálsins.

Það er svolítið neyðarlegt að á sama tíma og Mennta- og barnamálaráðuneytið fer af stað með þetta verkefni sendir annað ráðuneyti, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, frá sér tilkynningu um vitundarvakningu: „Að þessu sinni er vika íslenskunnar einnig nýtt til þess að vekja athygli á þeim breytingum sem eru að verða og hafa orðið á íslenskunni vegna enskra áhrifa og hvernig þær breytingar birtast í okkur vítt og breitt í samfélaginu og ekki hvað síst á samfélagsmiðlum, í einkaskilaboðum og jafnvel í opinberri umræðu“ (feitletrun mín). Vakin verður athygli á dæmum sem „endurspegla veruleika íslenskunnar eins og hann blasir við okkur“ – kannski væri ráð að hefja vitundarvakninguna innan Stjórnarráðsins og byrja á „TEAM-Iceland“.

Það er oft sagt að ásókn enskunnar sé mesta ógnin við íslensku um þessar mundir en það er í raun og veru ekki rétt – enskan fer ekki lengra en við leyfum henni að fara. Mesta ógnin er miklu fremur andvaraleysi okkar sjálfra – óþörf enskunotkun í hugsunarleysi, metnaðarleysi fyrir hönd íslenskunnar, og skilningsleysi á því að það skipti máli að halda henni á lofti, alltaf og alls staðar. Þetta endurspeglast allt í heitinu „TEAM-Iceland.“ Eftir höfðinu dansa limirnir og ef stjórnvöld hafa ekki meiri metnað fyrir hönd íslenskunnar en þetta heiti bendir til er baráttan vonlítil. Í tilefni af viku íslenskrar tungu vonast ég til að ráðuneytið finni þessu verkefni íslenskt heiti hið snarasta. Í stíl við átakið Áfram íslenska gæti það t.d. heitið Áfram Ísland.

Höfundur er uppgjafaprófessor í íslensku og málfarslegur aðgerðasinni.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×