Skoðun

Grætt á neyð Grind­víkinga

Hörður Guðbrandsson og Einar Hannes Harðarson skrifa

Að undanförnu höfum við staðið fyrir ákalli til lífeyrissjóða um að hjálpa Grindvíkingum í neyð. Eins og allir vita stendur heilt bæjarfélag nú frammi fyrir því að þurfa að fara inn á sturlaðan leigumarkað til að búa sér til heimili til skamms tíma. Bankarnir brugðust við ákalli okkar Grindvíkinga um að fella niður vexti og verðbætur næstu þrjá mánuði, til að byrja með. Lífeyrissjóðirnir hafa hins vegar ekki svarað þessu kalli.

Ágætt er að skýra hér hvers vegna við förum fram á þetta. Við erum með raundæmi um einstakling sem er með 44 milljóna króna lán hjá Gildi lífeyrissjóði. Hann fær afborganir af höfuðstóli frystar í þrjá mánuði en enga niðurfellingu á vöxtum og verðbótum, eins og stæði honum til boða ef hann væri með lán hjá banka. Þessi einstaklingur þarf vegna þessa að greiða aukalega 9,2 milljónir af láninu sínu yfir lánstímann. Afborgun af láninu hækkar um rúmlega 5% af mánuði og heildargreiðsla yfir samningstímann einnig. Sjóðurinn græðir á neyð Grindvíkinga.

Fyrsta viðkvæði lífeyrissjóða, þegar þessi krafa var fyrst sett fram, var að þeim væri ekki heimilt, vegna þeirra laga og reglna sem þeir starfa eftir, að fella niður vexti og verðbætur. Fátt var um svör þegar farið var fram á að vísað yrði í þau lög og þær reglur. Núna, mánuði eftir að við þurftum að flýja heimili okkar, er búið að kaupa lögfræðiálit af stofu út í bæ. Niðurstaðan er einmitt sú sem stjórnendur Gildis vildu. Hvað ætli Gildi hafi greitt fyrir þetta álit?

Um áramótin tekur nýr framkvæmdastjóri við hjá Gildi. Fráfarandi framkvæmdastjóri fékk níu mánaða ráðgjafasamning frá sjóðnum okkar í starfslokagjöf. Í heilt ár hefur sá sem á að taka við stöðunni verið í læri hjá núverandi framkvæmdastjóra. Sjóðfélagar munu því þurfa að halda uppi tveimur framkvæmdastjórum – hálaunakörlum – á launum í 21 mánuð þar sem þeir geta ráðlagt hvor öðrum.

Hann er sennilega miklu hærri, kostnaðurinn sem sjóðfélagar þurfa að greiða fyrir að skipta um framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins Gildis, heldur en sú fjárhæð sem hefði þurft að reiða fram til að koma til móts við Grindvíkinga sem flýja hafa þurft heimili sín. Það er ljóst að samtrygging elítunnar hefur sjaldan verið sterkari en núna.

Við skorum á fráfarandi framkvæmdastjóra Gildis að afþakka starfslokagjöfina og semja um hefðbundinn þriggja mánaða uppsagnarfrest eins og óbreyttum sjóðfélögum úti í samfélaginu stendur til boða c fólkinu sem hann vinnur fyrir.

Svo væri hægt að nota mismuninn til að hjálpa Grindvíkingum í neyð.

Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Einar Hannes Harðarson, formaður sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×