Skoðun

Loksins loksins!

Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Eftir hraðlestur á tillögum ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum er ég bara nokkuð sáttur við útkomuna. Auðvitað er eitthvað þarna sem að ég hefði viljað hafa öðruvísi.

En fljótt á litið er þetta nokkuð gott plagg, til að byrja með, í ljósi þess að það er unnið af þremur mismunandi og flestu leyti ólíkum flokkum. Flokki sem helst hefur engar breytingar vilja gera, flokki sem tekur ekki ákvarðanir, án þess að hlera salinn áður, en er þess á milli fjarverandi nema þegar gefið er á garðann og svo af flokki sem að hefur árum saman talað fyrir daufum eyrum, fyrir gagngerum breytingum á málaflokknum.

Þessar tillögur eru þó fjarri því eitthvað lokasvar í málaflokknum. Enda heimurinn stöðugt að breytast og á jafnvel eftir að breytast á meðan að vinnu við útfærslu þessara tillagna stendur yfir.

Til þess að þessar tillögur í heild skili viðunnandi árangri, þurfa hælisleitendamálin að vera í algerum forgangi. Um leið og í þeim hluta viðfangsefnisins skapast einhver ró og jafnvægi, verður hægara um verk að hrinda hinum tillögunum í framkvæmd.

Leggja þarf ríka áherslu á starfsréttindahlutann. Hann er lykilinn að því að hægt verði að ráða fólk hingað með réttu menntunina til þess að takast á við nýjar áskoranir á sviði heilbrigðismála og annarra vísinda og tæknimála sem næstu ár og áratugir 21. aldarinnar leiða fram í dagsljósið. Takist það, mun það liðka verulega fyrir þeirri miklu verðmætasköpun sem nauðsynlegt er að ráðast í hér á næstu árum og áratugum, svo viðhalda megi og bæta hér um ókomin ár okkar grunnstoðir, eins og velferðar, mennta og heilbrigðiskerfi.

Það hefur auðvitað öllum verið það ljóst, um allnokkuð skeið, að nauðsynlegt hefur verið að stíga inn í ríkjandi ástand af myndugleik og taka á því. Líka þeim sem af einhverjum ástæðum, sem ekki verða raktar hér hafa barist gegn breytingum á útlendingalöggjöfinni.

Það er hins vegar alveg ljóst, að þeir flokkar sem berjast munu áfram gegn litlum eða stórum breytingum, til góðs á útlendingalöggjöfinni, eru og verða um ókomin ár, best geymdir í stjórnarandstöðu og helst utan þings.

Það er fyrir löngu komið að ögurstund og tíminn til þess að hefjast handa er núna.

Höfundur er formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×