Skoðun

Týndi hlekkurinn í jafn­réttis­bar­áttunni

Stella Samúelsdóttir skrifar

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag, föstudaginn 8. mars og verður honum fagnað með ýmsum hætti um allan heim. Haldið er upp á þá áfanga sem náðst hafa í réttindum kvenna á síðustu árum og áratugum, en dagurinn er einnig nýttur til þess að vekja athygli á stöðu jafnréttis í heiminum.

Og hver er staða jafnréttis?

Heimurinn hefur orðið vitni að gríðarlegu bakslagi í jafnréttismálum undanfarin ár, náttúruhamförum fer fjölgandi og vopnuð átök hafa færst í aukana - sem hafa haft þær afleiðingar að sárafátækt eykst og fjöldi fólks á flótta hefur aldrei verið meiri.

  • 300 ár eru í að jafnrétti náist, haldi þróunin áfram á sama hraða og hingað til
  • Með þessu áframhaldi munu 342 milljónum fleiri konur og stúlkur búa við sárafátækt árið 2030 en í dag
  • Konur njóta aðeins um 64% þeirra lagalegu réttinda sem karlmenn búa við
  • 1 af hverjum 3 konum verða fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á ævinni
  • 614 milljónir kvenna og stúlkna bjuggu á átakasvæðum árið 2022, þetta eru 50% fleiri konur og stúlkur en árið 2017. Konur og stúlkur á átakasvæðum búa við aukna hættu á að verða fyrir ofbeldi, þar með talið heimilisofbeldi. Tíðni heimilisofbeldis er 2,4 sinnum hærri á svæðum þar sem ótryggt ástand ríkir.
  • 45.000 konur eru myrtar árlega af maka eða nákomnum ættingja
  • Að meðaltali fá konur 20% lægri laun en karlmenn fyrir sömu vinnu. Í sumum ríkjum er þetta hlutfall mun hærra

Staða jafnréttis í heiminum er ekki góð og fer versnandi. Hvað er hægt að gera til þess að sporna við því bakslagi sem orðið hefur og hraða framförum í átt að jafnrétti? Undanfarin tvö ár hafa Sameinuðu þjóðirnar lagt aukna áherslu á mikilvægi þess að aðildarríki, fjármálastofnanir, fyrirtæki og einstaklingar fjárfesti markvisst í konum undir slagorðinu: „Invest in women: Accelerate progress”. Fjárfesting í jafnrétti er efnahagslega mikilvæg öllum ríkjum, enda sýna útreikningar að verg landsframleiðsla á heimsvísu myndi aukast um 20% miðað við höfðatölu, ef kynjabilinu yrði eytt, en slík fjárfesting er ekki síður mikilvæg út frá mannréttinda sjónarmiði.

UN Women, stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur að jafnrétti og valdeflingu kvenna um allan heim, áætlar að það muni kosta heiminn 360 milljarða Bandaríkjadala að koma jafnrétti á í heiminum. Það jafngildir um það bil 2/3 þeirrar upphæðar sem heimurinn eyðir í kaffi á hverju ári. Þetta er því í raun ekki svo há upphæð, sérstaklega miðað við ávinninginn við að ná jafnrétti sem jafngildir aukningu um 21 trilljón Bandaríkjadala af vergri þjóðarframleiðslu á ári á heimsvísu.

UN Women á Íslandi heldur því áfram að hvetja einstaklinga, fyrirtæki og stjórnvöld um að sameinast og fjárfesta í baráttunni fyrir jafnrétti. Við getum ekki beðið í 300 ár í viðbót!

Höfundur er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×