Skoðun

Laskað stýri, lé­leg vél og lekur bátur

Sigurður Páll Jónsson skrifar

Mönnunarvandamál í brúnni á þjóðarskútunni fór í uppnám á dögunum þegar skipstjórinn stökk frá borði og hugðist stefna á þægilega innivinnu á Álftarnesi. Sennilega kemst skipstjóri þessi ekki í bókina, þrautgóðir á raunarstund.

Eftir sat áhöfnin sem eftir töluvert “japl, jaml og fuður” endurraðaði í brúnna og í skipstjórastólinn settist sá sem hafði mesta reynslu sem skipstjóri á þjóðarskútunni, eða átta mánuði, eftir að skútan sigldi uppá sker eftir stutta siglingu haustið 2017. Skipstjóri þessi hefur haft þann sið undanfarið að skipta um stóla eftir því hvernig vindar blása á skútuna og trufla hans persónulega öryggi.

Við sæti fjármála á feyginu tók dýralæknir sem aldrei hefur migið í saltann sjó en hafði áður sinnt samgönumálum og fært þau 25 ár aftur í tímann. Þar áður var hann reyndar skipstjóri á þjóðarskútunni í sex mánuði eftir að hafa hafa ásamt sínum flokk, rutt úr vegi þáverandi skipstjóra. Sá skipstjóri fiskaði vel og kom þjóðarskútunni á flot eftir gjaldþrot útgerðarinnar, nokkrum árum áður. Það lagðist illa í hinn forna flokk dýralæknisins sem kýs frekar að láta reka á reiðanum og fá að fljóta með öðrum en er samt alltaf besti vinur aðal.

Þriðji stýrimaður er alltaf hálf sjóveikur enda vanari landvinnu frá fyrra starfi og er í raun fastur í því djobbi sem er formennska landverndar. Eftir samkomulag þessarar endurmönnunar í brúnni á skútunni okkar allra virðist þriðji stýrimaður hafa gleymt meginn inngangi samkomulagsins sem birtist nefnilega almenningi í grein frá honum þremur dögum eftir sáttmála endurmannaðra yfirmanna þjóðarskútunnar.

Við matvælamálum tók ráðskona við af annari ráðskonu sem virðist ekki ætla að breyta matseðlinum mikið. Stór hluti áhanfnar skútunnar er þó spenntur yfir því hvort hvalkjöt, rengji og spik verði á matseðlinum.? En fyrri matráðskona tók þann rétt af matseðlinum. Íslenskt lambakjöt er á kostlista nýju ráðskonunnar en lennti í skrúfunni á leiðinni um borð og verður þá framreitt sem lambahakk.

Fyrrverandi matráðskona tók við innviðamálum þjóðarskútunnar af dýralækninum og eru áhafnarmeðlimir hræddir um að þar eigi hlutirnir eftir að “í besta falli” standa í stað miðað við árangur viðkomandi ráðskonu í fyrri störfum.

Já myndin er ekki björt sem greinarhöfundur dregur upp af yfirmönnum þjóðarskútunnar nýmönnuðu sem þarf eins fljótt og kostur er að fara í slipp til klössunnar og endurmönnunnar í brúnni.

Þó þjóðarskútan sé í dag með laskað stýri og tógið í skrúfunni er skipið í grunninn frábært fley sem fært er í flestan sjó ef viðhaldi og endubótum er sinnt auk traustrar mönnunnar við stjórnvölinn.

Höfundur er sjómaður og varaþingmaður Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×