Skoðun

Dags­birtan lyftir andanum

Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir skrifa

Í fornum fræðum er talað um að rýmið sé fíngerðasta efni náttúrunnar. Það kemur næst á eftir loftinu, sem kemur á eftir eldinum, þar á undan er vatnið og jörðin rekur lestina sem grófasta efnið.

Í byggingalistinni birtist rýmið í krafti hinna frumþáttanna fjögurra, en samspil þeirra skapar andrúmsloft sem hver og einn skynjar með sínum hætti. Því má til sanns vegar færa að rýmið sé fíngerðast vegna þess að upplifun okkar af því er huglæg.

Þegar híbýlaauðurinn er skoðaður má velta fyrir sér hvort og þá hvar fulltrúar jarðar, vatns, elds og lofts séu á heimilum, hvert sé mikilvægi þessara frumþátta náttúrunnar við athafnir daglegs lífs, hvernig þeir hafa áhrif á mótun rýma og hvernig andrúmsloft er skynjað með öllum skynfærum.

Rifjaðu nú upp minningu um íbúðarrými sem hefur haft sterk áhrif á þig og skoðaðu hvað það er í rýmismótun sem olli þessum hughrifum. Hérna skaltu horfa fram hjá húsbúnaði, efnum og innréttingum og einblína á rýmið sjálft. Þú opnar útidyrahurðina, stígur yfir þröskuldinn og nemur andrúmsloftið. Þú tekur eftir hvað grípur augað, hvernig hljóðið berst, skynjar snertingu við efni og finnur lykt. Þú upplifir birtuna og það hvernig þessi staður fléttast saman við aðra staði íbúðarinnar. Þannig skoðar þú öll rými koll af kolli og hvað það er sem gefur hverju og einu sín sérkenni. Í framhaldinu veltir þú fyrir þér hvernig hver athöfn dagsins er römmuð inn. Þú sérð fyrir þér hvernig rýmið heldur utan um það að hvílast, lauga sig, matbúa, snæða og eiga samskipti.

Arkitektúr fjallar um mótun rýma og aðferðir við rýmismótun eru fjölmargar. Heimili í sinni einföldustu mynd má líkja við hirðingjatjald þar sem gólfmottur á jörðinni skilgreina staði til að dvelja á. Þar er rýmið mótað af mottunni sem leggst ofan á slétta jörðina - í flóknari útfærslu getur rými verið mótað með hæðarmun gólfa. Eins og í hirðingjatjaldinu má vinna loftið með hliðstæðum hætti og skapa með því fjölbreytta staði innan heimilisins. Fjarlægð milli veggja og hlutföll móta svo sannarlega rými og gera útslagið varðandi virkni þess. Veggir geta skapað skýrt afmörkuð rými eða fléttað rýmum saman. Þeir veita skjól fyrir innsýn meðan gluggar móta tengsl heimilisins við umhverfi sitt og útsýni.

Flæði dagsbirtunnar inn í híbýlin hefur áhrif á líðan íbúanna. Dvölin snýst um ljósið sem fylgir athöfnum daglegs lífs frá sólarupprás til sólseturs. Það hvernig birtan fellur inn í rými með beinum eða óbeinum hætti hefur áhrif á upplifun og andrúmsloft. Hún dregur fram mótun rýmisins, er síbreytileg og með blæbrigðum sínum lyftir hún andanum.

Höfundar eru arkitektar og hluti af þverfaglegum hópi Híbýlaauðs.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×