Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. maí 2024 16:29 Orri Freyr Þorkelsson nýtti tækifærið vel og spilaði frábæran leik í dag. Kom óvænt aftur inn undir lokin og endaði markahæstur með 9 mörk. Kolektiff Images/DeFodi Images via Getty Images
Ísland tryggði sér farseðil á heimsmeistaramótið í handbolta 2025 með afar öruggum 24-37 sigri gegn Eistlandi ytra. Ísland vann fyrri leik liðanna 50-25 og einvígið samanlagt 87-49. Það var allt annað yfirbragð á Eistunum í þessum leik en þeim fyrri. Mun þéttari varnarleikur og ágætis sóknarleikur á köflum. Þeim tókst að loka vel á ýmislegt sem Ísland reyndi en liðið býr yfir fjölbreyttu vopnabúri og réðst til árásar þegar og þar sem tækifærin gáfust. Ómar Ingi Magnússon var fremstur í flokki og raðaði inn sjö mörkum í fyrri hálfleik. Gísli Þorgeir dreifði boltanum og gaf góðar stoðsendingar. Þá var mikið leitað út í vinstra hornið á Orra Frey Þorkelsson sem átti frábæran fyrri hálfleik og skoraði sjö mörk líkt og Ómar. Hálfleikstölur 13-18. Allt það helsta úr fyrri hálfleik. Ísland leiðir með fimm, 13-18 pic.twitter.com/0rGHV1nZAg— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 11, 2024 Í seinni hálfleik voru margar breytingar gerðar á íslenska liðinu. Ágúst Elí kom inn í markið, róterað mikið og allir leikmenn fengu mínútur, hornamönnunum var skipt út en Orri Freyr kom reyndar aftur inn þegar Bjarki Már skaut í andlit markmanns úr víti. Ómar Ingi Magnússon kom ekki meira við sögu í seinni. Eistar gáfu aðeins eftir í seinni hálfleik og hleyptu íslenska liðinu lengra fram úr. Vörnin sem hélt þokkalega í fyrri hálfleik opnaðist á ný og ef ekki hefði verið fyrir markmanninn Rasmus Ots hefði endað mun verr. Hann endaði með alls 14 varin skot. Ísland sigldi samt örugglega út úr þessu verkefni og verður meðal þjóða á HM 2025 sem fer fram í Danmörku, Noregi og Króatíu. Atvik leiksins Hendrik Koks gaf eistneskum áhorfendum ástæðu til að gleðjast þegar hann skoraði skemmtilegt sirkusmark á 48. mínútu eftir sendingu frá Jurgen Rooba í hægra horninu. Dómarar – 8 Lettarnir Edmunds Bogdanovs og Ivars Cernavksis héldu utan um flauturnar. Litháinn Valdas Gecevicius var eftirlitsmaður. Edmunds fékk boltann í sig á 52. mínútu og stöðvaði skyndisókn Íslands eftir varið skot og sendingu frá markverðinum Ágústi Elí. Eitt skipti sem var augljóslega brotið á Einari Þorsteini í skotinu. Að öðru leyti alls ekkert út á þá að setja. Stjörnur og skúrkar Ómar Ingi og Gísli Þorgeir allt í öllu í fyrri hálfleik sérstaklega. Óðinn Ríkharðsson átti frábæran seinni hálfleik, kom 6 mörkum að. Viggó Kristjánsson var þá í stærru hlutverki og skoraði fimm. Orri Freyr kom aftur inn undir lokin og endaði markahæstur með 9 mörk. Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur Íslendinga í dag með níu mörk. Hér er eitt af þeim glæsilegri, þar sem hann sneiðir boltann yfir markvörðinn🤾♂️ pic.twitter.com/KdRDY5qegc— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 11, 2024
Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2025 Tengdar fréttir Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann vægast sagt öruggan sigur er liðið tók á móti Eistum í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2025. Lokatölur 50-25, en seinni leikur liðanna fer fram í Eistlandi á laugardaginn. 8. maí 2024 22:19 Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Eistlendingar viðurkenna að nær ómögulegt sé fyrir þá að slá út Íslendinga í umspilinu um sæti á HM í dag, enda fór fyrri leikur liðanna 50-25 í Laugardalshöll. 11. maí 2024 11:23
Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann vægast sagt öruggan sigur er liðið tók á móti Eistum í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2025. Lokatölur 50-25, en seinni leikur liðanna fer fram í Eistlandi á laugardaginn. 8. maí 2024 22:19
Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Eistlendingar viðurkenna að nær ómögulegt sé fyrir þá að slá út Íslendinga í umspilinu um sæti á HM í dag, enda fór fyrri leikur liðanna 50-25 í Laugardalshöll. 11. maí 2024 11:23
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti