Skoðun

Taktík. - Fyrir fegurðina og lýð­ræðið

Gunnlaugur Ólafsson skrifar

Í núverandi stjórnarskrá er ekki gert ráð fyrir að kjörinn forseti þurfi meirihluta stuðning kjósenda. Hinsvegar í nýrri stjórnarskrá er gert ráð fyrir því að nái engin frambjóðenda meirihluta þá verði seinni umferð kosninga þar sem kosið er á milli tveggja efstu frambjóðenda úr fyrri umferð.

Valdaelítur menningar og fjármagns hafa með undarlegum hætti sameinast á bakvið framboð Katrínar Jakobsdóttur. Helmingslíkur eru á að hún nái kjöri með innan við fjórðungs hlutfalli kjósenda. Fylgi hennar hefur reynst fasti á meðan fylgi við aðra hefur sveiflast. Nú þarf taktík í kosningum til að yfirvinna galla stjórnarskrár.

Valdaelítur menningar og fjármála eru að sjálfsögðu á móti heilbrigðu lýðræði. Það liggur í eðli máls. Þeir vilja ekki missa spón úr aski sínum. Tengslaneit þeirra sem eiga og ráða eru líka á móti gildistöku nýrrar stjórnarskrár sem hefur þatttöku og samvinnu allra sem grunnforsendu. Heiðarleika og heilindi.

Samkvæmt könnunum getur um helmingur landsmanna alls ekki sætt sig við að Katrín Jakobsdóttir verði næsti forseti. Fyrir því liggja mjög margar ástæður. Flestar þeirra tengjast misnotkun valds. Það er eitt og sér óásættanlegt að hún yrði þá í eitt og hálft ár forseti yfir eigin ríkisstjórn.

Þannig er hún vanhæf að staðfesta eigin frumvarp sem liggur fyrir Alþingi um lagareldi og þar með gjaldfrjáls og ótakmörkaðar leyfisveitingar til fiskeldis. Líklegt er að tengslanet hennar í stjórnmálakreðsum landsins hafi áhrif í stjórnarmyndunarviðræðum.

Það er hreint súrealískt eitt og sér að Hannes Hólmsteinn sem aðstoðaði fyrrverandi forseta Brasilíu við áætlanir um eyðingu Amazon regnskógarins og hugmyndasmiður íslenskrar gróðahyggju sé einn af helstu stuðningsmönnum fyrrum formanns Vinstri grænna. Engin prinsip. Bara völd.

Sá frambjóðandi sem 90% landsmanna geta vel hugsað sér sem næsta forseta nefnist Halla Hrund Logadóttir Snæfríður Íslandssól heiðarleika og heilinda. Traustið og viskan sem við þurfum. Allir þurfa nú að leggjast á árar, með kæti og eftirvæntingu, að tryggja Höllu Hrund góða kosningu. Fyrir lýðræðið og fegurðina.

Höfundur er lífeðlisfræðingur og leiðsögumaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×