Skoðun

Að breyta heiminum

Valgeir Magnússon skrifar

Stundum stendur maður frammi fyrir ákvörðunum sem eru stórar og stundum frammi fyrir ákvörðunum sem eru litlar. Margar breyta deginum, fáar breyta lífi manns og örfáar breyta heiminum.

Núna stöndum við frammi fyrir því að velja okkur næsta forseta íslenska lýðveldisins. Þar koma margir hæfir til greina og við verðum ekki svikin, sama hvernig fer. Það er samt einn kostur sem ber af öllum hinum. Hver sem verður fyrir valinu mun fá sinn sess í Íslandssögunni. Í einu tilfelli getum við skrifað nýjan kafla í mannkynssöguna.

Það eru stærri skilaboð til heimsins en flestir geta ímyndað sér að við verðum fyrst allra þjóða til að kjósa hinsegin forseta í persónukjöri og láta þar með heiminn vita hvernig við hugsum á Íslandi. Mannréttindakafli mannkynssögunnar verður uppfærður á einstakan hátt.

Baldur er vel að embættinu kominn, með yfirburðarþekkingu á stjórnkerfi landsins og alþjóðamálum og með gott plan um það hvernig við getum orðið fremst meðal þjóða í málefnum barna og ungs fólks. Með þessu stendur hann þegar fremstur meðal jafningja í valinu um það hver er besti kosturinn fyrir börnin, ungmennin, iðnaðinn, sjávarútveginn, menntakerfið, heilbrigðiskerfið, byggingariðnaðinn, foreldra, afa og ömmur, bændur, lögregluna, Landhelgisgæsluna, björgunarsveitirnar, slysavarnafélögin, verslunarfólk, ferðaiðnaðinn og heiminn allan.

Að breyta heiminum er stórkostlegt og það hjálpar öllum. Það hálpar okkur Íslendingum og það hjálpar öllum sem eru hinsegin í heiminum.

Ég man vel þegar ég var ungur og var í skólum í Bretlandi og Þýskalandi árin 1982-1987. Ég man hvað ég var stoltur þegar fólk heyrði að ég væri frá Íslandi og það fann sig knúið til að segja mér að það vissi að á Íslandi væri kona forseti og að hún héti Vigdís. Það var stærra en fólk áttaði sig á á þeim tíma að kjósa Vigdísi og breyta heiminum. Heimurinn varð aldrei samur eftir það, sem betur fer.

Með Baldri fáum við bæði öflugasta forsetann og brjótum blað í mannréttindamálum. Við fáum öflugan einstakling sem ætlar sér að sameina okkur í málum barna og ungmenna. Sem vill huga að geðheilsu ungmenna, vímuefnavanda, lesskilningi og hvernig ungt fólk getur nýtt sér þau tækifæri sem samfélagið hefur að bjóða. Mann sem talar af þekkingu um fyrirhyggju í öryggismálum, fæðuöryggi, birgðastöðu og öryggi sæstrengjanna sem tryggja samskipti við umheiminn. Hvernig við stöndum að stuðningi við björgunarsveitirnar, slysavarnafélögin, lögregluna og Landhelgisgæsluna. Mann sem stendur alltaf með þeim sem höllum fæti standa en er jafnframt reiðubúinn að vinna með stjórnvöldum og atvinnulífinu við tengslamyndun í alþjóðaviðskiptum. Mann sem er trúverðugur baráttumaður fyrir mannréttindum og getur beint sterku kastljósi á mannréttindi í heiminum. Ég verð aftur stoltur þegar það ljós skín á ný frá Íslandi.

Þetta er ástæða þess að ég ræ að því öllum árum að Baldur Þórhallsson verði næsti forseti Íslands.

Höfundur er stjórnarformaður PiparTBWA.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×