Skoðun

Að loknum flokksráðsfundi Sjálf­stæðis­flokksins

Ragnar Sigurðsson skrifar

Nýafstaðinn flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins var afar vel heppnaður. Með metþátttöku 370 fulltrúa varð fundurinn sá fjölmennasta frá upphafi. Kraftmikill og uppbyggilegur, þar sem fundarmenn fengu tækifæri til að ræða forgangsmál Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórninni, auk þess sem horft var til komandi kosninga.

Á fundinum var skerpt á mikilvægustu málefnum sem flokkurinn mun leggja áherslu á, bæði innan ríkisstjórnar og í kosningabaráttunni. Forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar væri að stuðla að lægri verðbólgu og lækkun vaxta. Það yrði einungis gert með aðhaldi í opinberum fjármálum, hóflegum kjarasamningum á vinnumarkaði og meira jafnvægi á húsnæðismarkaði.

Sjálfstæðisstefnan sameinar

Auðvitað tókust menn hart á um menn og málefni. Slakt fylgi í könnunum ýtti þar undir. En það vakti sérstaka athygli mína er sú eining sem ríkir um grunnstefnu flokksins. Þrátt fyrir margvíslegan málefnaágreining var enginn að draga í efa grunnstef sjálfstæðisstefnunnar um mikilvægi einstaklingsfrelsi, eignarréttar, jafnra tækifæra og velferðar fyrir alla. Flokkurinn stendur enn sem öflug máttarstoð fyrir kjósendur með skýra stefnu og staðfestu um virðingu fyrir lögum og rétti, bæði innanlands og í samskiptum við önnur ríki.

Árið 2024 markar 80 ára afmæli lýðveldisins, og Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá stofnun þess verið leiðandi afl í íslensku samfélagi. Við höfum verið leiðandi í að byggja eitt mesta velferðarsamfélag jarðar. Við höfum verið lykilþáttur í mótun gróskumikils samfélags þar sem atvinnulíf, nýsköpun, menntun og menning blómstra. Efnahagslegur stöðugleiki hefur verið tryggður, heilbrigðisþjónustan efld og félagslegt öryggi borgara verið eitt af megináherslumálum okkar.

Þéttum raðirnar

Stefna flokksins er skýr og á sér hljómgrunn meðal þjóðarinnar. Við sjáum mikilvægi þess að nýta síðasta ár kjörtímabilsins vel, þétta raðirnar og tryggja að hægri stjórn verði áfram leiðandi í stjórnmálum landsins.

Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins sýndi að hann stendur enn sterkur og reiðubúinn til að leiða áfram. Við eigum enn sterkt erindi við kjósendur með skýra stefnu um frelsi, ábyrgð og velferð.

Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð og formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×