Skoðun

Af­nemum launa­mis­rétti

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Hvenær byrjaðir þú að vinna launalaust í dag, kona góð?

Þessi spurning á að vera fjarstæðukennd í samtímanum en verður því miður raunverulegt álitamál þangað til launamun kynjanna hefur verið útrýmt. Við sem samfélag hyglum enn hinu karllæga, feðraveldið lifir góðu lífi og framlag kvenna til samfélagsins er gjaldfellt. Vanmat á kvennastörfum er ein helsta ástæða kynbundins launamunar.

Alþjóðlegur jafnlaunadagur í dag

Ísland tók frumkvæði að því að mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna lýsti daginn í dag, 18. september, alþjóðlegan jafnlaunadag. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á launajafnrétti og hvetja til frekari aðgerða til að markmiðið um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf nái fram að ganga. Í ár stendur sendiráð Íslands í París fyrir viðburði þar sem sjónum verður beint að launamun í íþróttum, sem er viðeigandi nú þegar Ólympíuleikum er nýlokið í París.

Launamunur kynja verður að heyra sögunni til

Við Íslendingar þurfum að líta okkur nær. Sjálfsmynd okkar byggir á því að Ísland sé jafnréttisparadís, og við mælumst efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir jafnrétti kynjanna. En, það segir ekki alla söguna. Enn fyrirfinnst launamunur þó gripið hafi verið til margvíslegra aðgerða undanfarin ár og umtalsverður árangur þegar náðst.

Góður árangur hefur náðst með jafnlaunavottun sem nær til fyrirtækja og stofnana með 25 starfsmenn eða fleiri á ársgrundvelli. Markmiðið með jafnlaunavottun er að tryggja sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Nú hafa 616 fyrirtæki og stofnanir öðlast jafnlaunavottun og nær vottunin því til meginþorra vinnumarkaðarins eða ríflega 83% starfsfólks sem lögin ná til. Jafnlaunavottun fjallar þó aðeins um mat starfa og laun innan hverrar stofnunar eða fyrirtækis fyrir sig en tryggir ekki að virði starfa sé metið þvert á vinnustaði samfélagsins. Nauðsynlegt er að beita víðtækari nálgun. Ólík störf geta verið jafn verðmæt þó gamaldags gildismat um hvað einkenni hefðbundin kvennastörf byrgi okkur sýn.

Virðismatskerfi: Ný nálgun á afnám launamisréttis kynjanna

Í kjarasamningum sem náðust á almennum vinnumarkaði í vor er ein af aðgerðum stjórnvalda að innleiða í áföngum virðismatskerfi sem felur í sér breiðari nálgun á mati á virði starfa en áður hefur verið notuð hjá ríkinu. Aðgerðahópur sem mun stýra vinnunni var skipaður í síðustu viku. Ég sem ráðherra jafnréttismála og vinnumarkaðsmála bind miklar vonir við að virðismatskerfi sé það tæki sem við þurfum til að geta markvisst haldið áfram að afnema launamun kynjanna. Og, útrýma þeim mun.

Launamisrétti er eitt af því sem stendur okkur helst fyrir þrifum í að ná raunverulegu jafnrétti kynjanna. Jöfn laun snúast um svo miklu meira en bara launaseðilinn. Launamunur leiðir til minna fjárhagslegs sjálfstæðis og skertra lífeyrisréttinda í ellinni sem jaðarsetur konur og gerir þær háðar mökum um afkomu sína. Afnám launamisréttis er einn stærsti þátturinn í jafnréttisbaráttunni.

Höfundur er formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×