Skoðun

Tölum ís­lensku

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Því miður grípa allt of margir ósjálfrátt og án mikillar hugsunar til enskunnar þegar talað er við fólk af erlendum uppruna sem sest hefur hér að. Þar með er þjálfun viðmælandans í íslensku varpað fyrir róða. Þótt fólk eigi erfitt með að tjá sig á íslensku getur það í mörgum tilfellum skilið íslensku. Það kann að vera að margir séu ragir við að tala íslensku, finnist málið flókið eins og ókunn tungumál eru iðulega. Við verðum að hjálpa fólki yfir þessa hindrun með því að hvetja og hrósa. Við verðum einnig að senda þau skilaboð til fólks af erlendum uppruna sem ætla að búa á Íslandi til frambúðar að þeim sé nauðsynlegt að læra íslensku til þess að geta notið sín hér til fulls. Íslenskukunnáttan er lykillinn að því að eiga þess kost að sinna fjölbreyttum störfum. Íslenskukunnátta mun auka möguleika á framgangi í íslensku samfélagi. Það mun auðvelda fjölmargt s.s. samskipti við einstaklinga og stofnanir.

Margir íslendingar og jafnvel fólk af erlendum uppruna sem náð hafa góðum tökum á málinu vilja bara fá að tala íslensku heima á Íslandi. Þetta á alveg við um fólk sem jafnvel talar reiprennandi ensku en finnst skrýtið að geta ekki sest inn á kaffi- eða veitingahús eða kíkt í Rammagerðina án þess að vera beðin um að tjá sig á ensku við þjóninn eða afgreiðslufólkið. Þeim fer einnig fjölgandi sem vilja gjarnan aðstoða þá sem ætla að búa hér til langframa við að skilja og tala íslensku svo þeir geti aðlagast sem best íslensku samfélagi. Íslenskukunnátta fólks af erlendum uppruna er lykillinn að farsæld og framgangi þeirra í þjóðfélaginu.

Til að viðhalda og standa vörð um íslenskuna er sannarlega í mörg horn að líta. Þegar um tungumál er að ræða lærist það hraðast með því að tala það. Ég held að Íslendingar séu mjög umburðarlyndir gagnvart þeim sem spreyta sig á íslenskunni á fyrstu stigum. Flest okkar leggjum okkur fram um að sýna þolinmæði, hlusta og hjálpa til með einstaka orð. Þeir sem henda sér út í djúpu laugina, byrja að reyna að tjá sig á málinu þótt langt sé í land ná iðulega fljótt árangri sérstaklega ef þeim gefst einnig kostur á að sækja íslenskunámskeið. Það skiptir nýja Íslendinga öllu máli að fá tækifæri til að spreyta sig í samtölum við íslenskumælandi fólk. Tölum íslensku.

Höfundur er oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×