Skoðun

Takk, Gísli Marteinn

Eva Dögg Davíðsdóttir skrifar

Það er alltaf gott þegar mál sem skipta samfélagið máli fá umræðu í fjölmiðlum, í dægurmenningu og á kaffistofum landsins. Það var því gleðilegt að þingsályktunartillaga mín og fleiri þingmanna um bann við auglýsingum á jarðefnaeldsneyti var umræðuefni í síðasta þætti af Vikunni með Gísla Marteini. Eins og Gísli Marteinn réttilega bendir á, þá búum við í bílamiðuðu samfélagi þar sem það getur virst seint í rassinn gripið að banna auglýsingar á jarðefnaeldsneyti. En það er einmitt þess vegna sem umræðan er mikilvæg – þetta snýst ekki um að leysa allan vandann á morgun, heldur að taka skref í rétta átt.

Þessi tillaga er ekki til þess fallin að gjörbylta samfélaginu á morgun, og hér er enginn að halda því fram að bann við jarðefnaeldsneytisauglýsingum leysi vandamál tengd loftslagsvá eða yfirvofandi orkuskiptum. Það er heldur enginn að gera ráð fyrir því að jarðefnaeldsneytisauglýsingar hafi slík áhrif að fólk hoppi beint á rúntinn eftir að horfa á eina slíka eða að bann við þeim geri það að verkum að allir leggi einkabílnum og kaupi sér strætókort. En það er staðreynd að auglýsingar hafa alltaf verið áhrifarík leið til að móta neysluvenjur okkar. Við sáum það með banninu á tóbaksauglýsingum á sínum tíma – þegar samfélagið ákvað að auglýsa ekki lengur skaðlegar vörur, fóru lífsgæði að aukast og reykingar minnkuðu.

Það er sömuleiðis mikilvægt að halda því til haga að olíufyrirtæki hafa lengi stutt við hagsmunagæslu sem vinnur gegn nauðsynlegum breytingum, og auglýsingarnar eru hluti af því að viðhalda óbreyttu ástandi. Með því að draga úr sýnileika þessara auglýsinga breytum við smátt og smátt viðhorfum til þessara orkugjafa.

Við sem lögðum fram tillöguna erum ekki ein í þessari vegferð. Frakkar bönnuðu t.d. auglýsingar á jarðefnaeldsneyti árið 2022 og borgir eins og Haag, Amsterdam og Sydney hafa þegar sett á reglur gegn slíkum auglýsingum. Fjöldi auglýsingastofa um allan heim eru þegar byrjaðar að taka þetta samtal alvarlega, og António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur ítrekað hvatt ríki til að banna auglýsingar á jarðefnaeldsneyti.

Svo, kæri Gísli Marteinn, takk fyrir að vekja athygli á þessu máli. Eins og þú nefndir, þá búum við vissulega í samfélagi þar sem bílar eru ríkjandi – en þetta snýst ekki um að breyta því á einni nóttu. Og ef það þýðir að við sleppum við að horfa á nokkrar arfaslakar auglýsingar í leiðinni, þá er það bara enn betra!

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×